Annata Sales Configurator

Heildartexti lokaskýrslu. Prentuð útgáfa og öll fylgiskjöl á CD eru varðveitt á bókasafni HR. Annata er hugbúnaðarfyrirtæki sem selur hugbúnað út um allan heim. Fyrirtækið vinnur í samstarfi við Microsoft við að þróa lausnir sem byggja á Dynamics AX. Við sem vorum í þróunarteyminu, sem leysti verkef...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Bylgja Guðmundsdóttir 1978-, Steinar Bragi Sigurðarson 1990-, Tómas Gauti Einarsson 1989-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16274
Description
Summary:Heildartexti lokaskýrslu. Prentuð útgáfa og öll fylgiskjöl á CD eru varðveitt á bókasafni HR. Annata er hugbúnaðarfyrirtæki sem selur hugbúnað út um allan heim. Fyrirtækið vinnur í samstarfi við Microsoft við að þróa lausnir sem byggja á Dynamics AX. Við sem vorum í þróunarteyminu, sem leysti verkefnið, erum Bylgja Guðmundsdóttir, Steinar Bragi Sigurðarson og Tómas Gauti Einarsson, nemendur við Háskólann í Reykjavík. Verkefni okkar var að smíða Windows 8 RT snjallforrit (e. app) sem keyrir á spjaldtölvum. Forritið er sölukerfi fyrir sölumenn nýrra bíla. Því er ætlað að auðvelda sölumönnum vinnuna með því að einfalda ferli sem hingað til hefur verið töluvert flókið og krefst þess að sölumenn sitji við borðtölvur. Með forritinu okkar gætu sölumenn þá meðal annars tekið niður upplýsingar um sölutækifæri, skráð reynsluakstur og útbúið sölutilboð inni í sýningarsal með viðskiptavinum. Auðvelt er að leita að viðskiptavinum sem áður hafa byrjað á sölutilboði eða íhugað ákveðinn bíl og klára söluferli með þeim. Annata ehf.