Eru fyrirtæki á Íslandi markaðshneigð?

Markaðshneigð er ákveðin hegðun fyrirtækja gagnvart viðskiptavinum sínum. Með markaðsfærni vilja fyrirtæki geta rýnt betur í hegðun neytenda og eiga svör við þörfum neytenda og spá fyrir um framtíðarþarfir. Þekkingin og færnin á bak við hneigðina er mjög mikilvæg í samkeppninni sem er á hverjum mark...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásgeir Bachmann 1976-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Bak
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16178
Description
Summary:Markaðshneigð er ákveðin hegðun fyrirtækja gagnvart viðskiptavinum sínum. Með markaðsfærni vilja fyrirtæki geta rýnt betur í hegðun neytenda og eiga svör við þörfum neytenda og spá fyrir um framtíðarþarfir. Þekkingin og færnin á bak við hneigðina er mjög mikilvæg í samkeppninni sem er á hverjum markaði. Til að varpa ljósi á hvort íslensk fyrirtæki séu markaðshneigð eru skoðaðar fræðilegar rannsóknir sérfróðra aðila, til að varpa ljósi á hvað markaðshneigðin getur skapað fyrir fyrirtækin almennt. Færninni eru gerð skil og farið í helstu rannsóknir sem snúa að hlutverki færninnar í hegðun fyrirtækjanna. Megindleg rannsókn var gerð sem var send á markaðsstjóra eða forstöðumenn þeirra íslensku fyrirtækja sem tóku þátt í rannsókninni óflokkað eftir atvinnugrein til að varpa ljósi á hugsun og hegðun þeirra. Helstu niðurstöður eru að íslensk fyrirtæki telja sig markaðshneigð, ásamt að vera með vakandi augu á þeirri starfsemi sem þau starfa við. Erfitt er að alhæfa um niðurstöðu þessa verkefnis en hún er finnur hljómgrunn í rannsóknarniðurstöðum Narver og Slater í rannsókn frá 1990.