Áhrif þungatakmarkana á vegum - Kostnaðargreining helstu flutningsleiða

Eftirfarandi rannsókn er athugun á hagkvæmni þess að styrkja vegi á helstu flutningsleiðum svo draga megi úr þungatakmörkunum. Yfir vetrartímann og á vorin getur skapast svokallað þíðuástand á vegum. Við slíkt ástand dregur mjög úr burði vega og aukin hætta skapast á skemmdum vegna umferðarálags frá...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Árni Snær Kristjánsson 1984-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16108
Description
Summary:Eftirfarandi rannsókn er athugun á hagkvæmni þess að styrkja vegi á helstu flutningsleiðum svo draga megi úr þungatakmörkunum. Yfir vetrartímann og á vorin getur skapast svokallað þíðuástand á vegum. Við slíkt ástand dregur mjög úr burði vega og aukin hætta skapast á skemmdum vegna umferðarálags frá þungri umferð. Á þessum þíðutímabilum eru settar á þungatakmarkanir sem takmarka öxulþunga við 10 tonn. Við slíkar aðstæður lækkar leyfileg heildarþyngd flutningabíla og því geta flutningsaðilar þurft að flytja farm í fleiri ferðum en gerist við eðlilegar aðstæður. Það getur skilað sér í auknum kostnaði út í samfélagið. Rannsóknin byggir á rýni vísindagreina, gögnum frá Vegagerðinni um ástand vega ásamt skráningu þungatakmarkana. Einnig er stuðst við upplýsingar frá flutningsaðilum varðandi flutning og akstur. Niðurstöður verkefnisins sýna ekki hagkvæmni í því að byggja upp flutningsleiðirnar norður á Akureyri, vestur á Snæfellsnes og á Vestfirði. Niðurstöðurnar sýna aftur á móti hagkvæmni í uppbyggingu á flutningsleiðinni austur á firði um Suðurland. Með því að byggja upp þá veghluta sem hafa skert burðarþol og styrkja efsta lagið undir slitlaginu ætti þungatakmörkunum að fækka mikið og þær myndu jafnvel hverfa sem dregur úr kostnaði sem af þeim skapast. Niðurstaða verkefnisins gefur góða ástæðu til þess að fara út í frekari samanburð á kostnaðargreiningu á flutningsleiðinni frá Reykjavík austur á firði um Suðurleiðina. Yrði það gert með þeim hætti að framkvæma núvirðisreikninga eða arðsemisreikninga á kostnaði við uppbyggingu á leiðinni svo færa megi betri rök fyrir því hvort slík framkvæmd sé hagstæð. Lykilorð: Flutningar, þungatakmarkanir, vegagerð, burðarþol vega, slitlag. This thesis assesses the feasibility of strengthening the main transport routes in order to reduce seasonal load restrictions. During the winter and early spring periods, so-called thaw weakening periods can occur. Such conditions reduce the bearing capacity of roads with an increased risk of damage due to a traffic load resulting from heavy ...