Leikskólabörn fylgjast með gangi sólar og tungls : þróunarstarf um stjörnufræði á leikskóla

Verkefnið fjallar um þróunarstarf sem tengist stjörnufræði á leikskóla. Vinna við verkefnið fór fram á leikskóla í Reykjavík og stóð yfir í níu mánuði. Þróaðar voru hugmyndir um hvernig hægt er að vinna með stjörnufræði og tengja hana við skapandi starf á leikskólanum. Einnig voru skoðuð áhrif þessa...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sverrir Guðmundsson 1979-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16073
Description
Summary:Verkefnið fjallar um þróunarstarf sem tengist stjörnufræði á leikskóla. Vinna við verkefnið fór fram á leikskóla í Reykjavík og stóð yfir í níu mánuði. Þróaðar voru hugmyndir um hvernig hægt er að vinna með stjörnufræði og tengja hana við skapandi starf á leikskólanum. Einnig voru skoðuð áhrif þessarar vinnu á leikskólastarfið og hugmyndir barnanna um stjörnufræði. Viðfangsefni verkefnisins falla vel að Aðalnámskrá fyrir leikskóla frá 2011. Þar er meðal annars gert ráð fyrir að leikskólakennarar skapi aðstæður fyrir börn svo að þau öðlist merkingarbæra reynslu af fyrirbærum og hringrásum í náttúrunni. Einn þáttur verkefnisins snerist um að semja og leggja mat á árangur af kennslufræðilegum leikjum um færslu sólarinnar á himninum og útlit tunglsins. Markmiðið var að vekja athygli leikskólabarna á fyrirbærum sem tengjast stjörnufræðinni í umhverfinu og byggja grunn að reynslu og skilningi á þessum fyrirbærum. Leikskólakennararnir prófuðu sig áfram með hugmyndir sem sneru að stjörnufræði og komu með ábendingar um það sem betur mætti fara. Þeir leituðu eftir hugmyndum hjá börnunum og sköpuðu rými til þess að þau gætu sjálf unnið með stjörnufræðina í skapandi starfi. Leikskólakennarar eru í lykilhlutverki við að beina athygli barnanna að atriðum sem tengjast stjörnufræði. Með samskiptum við börnin hjálpa leikskólakennararnir þeim að byggja upp orðaforða og hugtakaskilning á þessu sviði og efla þannig málþroska þeirra. Afrakstur verkefnisins eru leiðbeiningar fyrir vísindaleiki og afurðir úr skapandi starfi, svo sem teikningar, pappalíkön og stuttmynd um geiminn. Haldið var til haga ýmsum hugmyndum og ráðleggingum frá leikskólakennurum um það hvernig hægt er að nota stjörnufræði í leikskólastarfi. Einnig var lagt mat á starfið og athugað hvaða hugmyndir börnin hafa um fyrirbæri stjörnufræðinnar og hvaðan þær hugmyndir gætu komið. The project is about developing methods to teach astronomy at preschool. It was carried out at a preschool in Reykjavik during a nine-month period. In the project various ideas on work in ...