Um fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri og fasteignakaupum

Fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi er aðalumfjöllunarefni þessarar ritgerðar. Verður meðal annars vikið að þróun erlendrar fjárfestingar hérlendis og hvernig hún hefur byggst upp að mestu leyti. Það sem helst verður vikið að eru þær heimildir sem finna má í lögum nr. 34/1991 um fjárfestingar erl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Stefán Bjarnason 1984-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15971
Description
Summary:Fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi er aðalumfjöllunarefni þessarar ritgerðar. Verður meðal annars vikið að þróun erlendrar fjárfestingar hérlendis og hvernig hún hefur byggst upp að mestu leyti. Það sem helst verður vikið að eru þær heimildir sem finna má í lögum nr. 34/1991 um fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri, taka lögin fram ákveðnar meginreglur og setja fjárfestum ákveðnar skorður sem vikið verður að. Miklar breytingar urðu á lögunum við lögfestingu Samningsins um hið Evrópska efnahagssvæði og heimildir aðila innan Evrópska efnahagssvæðisins til þess að fjárfesta hérlendis rýmkaðar til muna. Þrátt fyrir undirritun samningsins þá héldust áfram hömlur á fjárfestingum í einstökum greinum, til að mynda í sjávarútvegi. Þannig verður ekki hjá því komist að fjalla lítillega um Evrópurétt í því samhengi sem hann tengist Evrópska efnahagssvæðinu, þá aðallega fjórfrelsisreglurnar og hvernig þær hafa áhrif á þá lagasetningu sem hér er til staðar. Eins verður vikið stuttlega að lögum 19/1966 um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, sérstaklega þegar kemur að heimildum aðila innan Evrópska efnahagssvæðisins til fjárfestinga hér á landi sem settar hafa verið þrengri skorður. Þetta var gert með setningu reglugerðar nr. 358/2013 um breytingu á reglugerð nr. 702/2002, um rétt útlendinga, sem falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eða stofnsamning Fríverslunarsamtaka Evrópu, til að öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum. Loks verður fjallað um hvort einhverjar mögulegar lausnir eða úrbætur koma til greinar á regluverkinu eins og það er í dag og leitað út fyrir landssteinana eftir mögulegum lausnum. Foreign investment in Iceland is the central topic of this thesis. The development of foreign investment in Iceland will be discussed and how it has been developing in recent times. Mainly this thesis will focus on the authorization contained in the Foreign Investment Act. 34/1991, furthermore the constraints of the Act will also be discussed. The Act went through significant changes with the ...