Er munur á þyngd refsinga fyrir nauðgun eftir því hvort verknaður fellur undir 1. eða 2. mgr. 194. gr. hgl? Rannsókn á dómum Hæstaréttar 2007-2012

Í ritgerð þessari er þróun refsinga í nauðgunarmálum, frá því að lög nr. 61/2007 um breyting á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 tóku gildi 4. apríl 2007, rannsökuð. Sérstaklega er skoðað hvort að munur sé á þyngd refsinga fyrir nauðgun eftir því hvort verknaður fellur undir 1....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Nanna Dröfn Björnsdóttir 1984-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15963
Description
Summary:Í ritgerð þessari er þróun refsinga í nauðgunarmálum, frá því að lög nr. 61/2007 um breyting á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 tóku gildi 4. apríl 2007, rannsökuð. Sérstaklega er skoðað hvort að munur sé á þyngd refsinga fyrir nauðgun eftir því hvort verknaður fellur undir 1. eða 2. mgr. 194. gr. hgl. Athugaðir eru allir dómar Hæstaréttar, frá byrjun árs 2007 til loka árs 2012, þar sem sakfellt er fyrir 1. og 2. mgr. 194. gr. hgl. Með lögum nr. 61/2007 voru lögfest ýmis nýmæli sem hafa áhrif á ákvörðun refsingar fyrir nauðgun. Með lögunum var hugtakið nauðgun rýmkað mjög frá því sem það áður var. Nú teljast önnur kynferðisnauðung (áður 195. gr. hgl.) og misneyting (áður 196. gr. hgl. ) nauðgun og varða þyngri refsingu. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 61/2007 kom fram skýr vilji löggjafans um að lögð yrði minni áhersla á verknaðaraðferð þá sem beitt er við brotið og horft frekar á brotið sjálft gegn kynfrelsi einstaklingsins. Í ritgerðinni er því skoðað hvort að vilji löggjafans endurspeglist í dómum Hæstaréttar frá því að lögin tóku gildi og hvort að lagabreytingin hafi haft áhrif á þyngd refsinga fyrir nauðgun. Fram kemur að refsingar fyrir nauðgun hafi almennt verið að þyngjast. Sú þróun hafi hafist fyrir gildistöku laganna og haldið áfram síðustu sex ár. Enn megi þó greina nokkurn mun á þyngd refsinga eftir verknaðaraðferðum og þar vegur ofbeldi þyngst. Því virðist sem vilji löggjafans endurspeglist ekki að fullu í dómum Hæstaréttar frá því að lögin tóku gildi. This thesis examines the developement of punishment in rape cases since the amendments to the Icelandic Penal Code No. 19/1940 by Act. No. 61/2007 came into effect on 4th of April 2007. The main focus is on whether there is a significant difference of punishments in rape cases in relevance to methods according to the 1st. and the 2nds. paragraph of article 194 of the Penal Code. The research covers every convictions, from the highest court of Iceland Hæstiréttur, for violation of the 1st and the 2nd ...