Smámálameðferð : bættur aðgangur að dómstólum

Tilgangur ritgerðarinnar er að rannsaka meðferð minni háttar mála á Íslandi og hvort þörf sé á sérstakri smámálameðferð, til þess að uppfylla kröfur 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu um aðgang að dómstólum. Ritgerðin hefst á inngangskafla þar sem rannsó...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Aldís Geirdal Sverrisdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15941
Description
Summary:Tilgangur ritgerðarinnar er að rannsaka meðferð minni háttar mála á Íslandi og hvort þörf sé á sérstakri smámálameðferð, til þess að uppfylla kröfur 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu um aðgang að dómstólum. Ritgerðin hefst á inngangskafla þar sem rannsóknarefnið er kynnt. Í öðrum kafla er hugtakið smámál skilgreint, í samræmi við samsvarandi hugtök á Norðurlöndunum, sem ágreiningsmál sem varða kröfur með fjárhagslegt gildi undir 2.000.000 kr. Í þriðja kafla er farið yfir hvaða meðferð smámál fá í íslensku réttarkerfi, innan dómstólakerfisins og stjórnsýslunnar. Í fjórða kafla er ítarlega farið yfir smámálameðferð í Danmörku þar sem leitast er við að varpa skýru ljósi á helstu hliðar meðferðarinnar. Í fimmta kafla er á sama hátt gerð grein fyrir smámálameðferð í Noregi. Í sjötta kafla eru eldri hugmyndir um meðferð minni háttar mála hér á landi reifaðar. Í sjöunda kafla er farið yfir það hvort ástæða sé til að taka upp sérstaka smámálameðferð á Íslandi og í áttunda kafla er hugmynd að nýrri smámálameðferð kynnt. Að lokum eru helstu niðurstöður ritgerðarinnar teknar saman í lokakaflanum. Við rannsóknina var helst stuðst við sett lög, dómaframkvæmd og fræðiskrif, hérlendis og í Danmörku og Noregi. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að ný smámálameðferð myndi bæta aðgang að dómstólum á Íslandi í samræmi við mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar og Mannréttindasáttmála Evrópu. Small claims procedure better access to courts The objective of this thesis is to evaluate procedure of small claims in Iceland and evaluate if there is a need for a special small claim procedure, in order to meet the access to courts requirements of Article 70(1) of the Icelandic Constitution and of Article 6(1) of the European Convention on Human Rights. The thesis starts with a preamble where the research is introduced. In the second chapter the term small claim is defined, in accordance with similar terms in the Nordic countries, as a dispute concerning claims with economic value under 2,000,000 ...