Agreement between Iceland and Norway on the continental shelf between Iceland and Jan Mayen

Samkomulag Íslands og Noregs um landgrunnið á svæðinu milli Íslands og Jan Mayen Með samkomulagi Íslands og Noregs um landgrunnið á svæðinu milli Íslands og Jan Mayen frá 1981 var kveðið á um mörk landgrunnsins á svæðinu sem skyldu vera hin sömu og mörk efnahagslögsögu þeirra. Í samningnum var einni...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Agla Margrét Egilsdóttir 1985-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:English
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15935
Description
Summary:Samkomulag Íslands og Noregs um landgrunnið á svæðinu milli Íslands og Jan Mayen Með samkomulagi Íslands og Noregs um landgrunnið á svæðinu milli Íslands og Jan Mayen frá 1981 var kveðið á um mörk landgrunnsins á svæðinu sem skyldu vera hin sömu og mörk efnahagslögsögu þeirra. Í samningnum var einnig skilgreint sameiginlegt nýtingarsvæði sem nær yfir beggja vegna landgrunnsmarka Íslands og Jan Mayen. Samkvæmt fyrirkomulaginu um sameiginlegt nýtingarsvæði á Ísland rétt á 25% þátttöku í olíustarfsemi á norska hluta svæðisins og einnig á Noregur rétt á 25% þátttöku í olíustarfsemi á íslenska hluta svæðisins sem er þekkt sem Drekasvæðið. Markmið þessarar ritgerðar er að rannsaka lagagrundvöll fyrirkomulagsins sem kveður á um sameiginlega nýtingasvæðið þar sem lagagrundvöllur þess hefur verið umdeildur innan þjóðaréttar og þá sérstaklega hvort það sé talin vera þjóðréttarleg skylda að ganga í slíkt fyrirkomulag um sameiginlegt nýtingarsvæði. Það verður gert með því að rannsaka samspil ákvæða Hafréttarsáttmálans og annarra reglna þjóðaréttar, venjuréttar meðal þjóða og úrskurða Alþjóðadómstólsins. Einnig var kannað hvernig aðilar samningsins hafa útfært og túlkað samninginn enn frekar, sérstaklega þar sem að síðustu misseri hefur þurft að reyna á samninginn vegna útgáfu sérleyfanna. Eftir ítarlega greiningu kom í ljós að slíkt fyrirkomulag er ekki sérstaklega krafist af þjóðarétti, heldur er það eitt af nokkrum mögulegum lögfræðilegum fyrirkomulögum. Hins vegar er skylda fyrir ríki til að ganga til samstarfs og fá fram friðsamlegar úrlausnar deilumála samkvæmt sáttmála Sameinuðu Þjóðanna. Þessi skylda hefur einnig verið staðfest sem skylda til að ganga í samstarf við ríki vegna vinnslu á kolvetnisauðlindum þar sem það hefur verið viðurkennt af venjurétti og starfsháttum þjóða. Agreement between Iceland and Norway on the Continental Shelf Between Iceland and Jan Mayen The Agreement on the Continental Shelf in the Area Between Iceland and Jan Mayen, 1981 provided that the delimitation line between the Parties' parts ...