Áfallaáætlanir og áfallateymi í leikskólum í Reykjavík : tilvist og hlutverk

Í þessari B.Ed.-ritgerð er greint frá rannsókn á leikskólum í Reykjavík vorið 2013. Spurt var hvort leikskólar í Reykjavík hafa skilgreinda áfallaáætlun fyrir sinn skóla og ef svo er hvers konar viðbrögð, verkferli eða eftirfylgni er fjallað þar um. Þá var spurt hvort skilgreind væri áfallateymi í l...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jónína Dagmar Ásgeirsdóttir 1958-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15882
Description
Summary:Í þessari B.Ed.-ritgerð er greint frá rannsókn á leikskólum í Reykjavík vorið 2013. Spurt var hvort leikskólar í Reykjavík hafa skilgreinda áfallaáætlun fyrir sinn skóla og ef svo er hvers konar viðbrögð, verkferli eða eftirfylgni er fjallað þar um. Þá var spurt hvort skilgreind væri áfallateymi í leikskólunum og ef svo er hverjir eiga sæti í þeim, hvers konar viðfangsefni séu skilgreind fyrir teymin og hvers konar handleiðslu þau hafa fengið. Gagnaöflun fólst í að farið var með gátlista í alla leikskóla í Reykjavík sem rannsakandi skráði á og fengust svör frá 80% starfandi leikskólum í borginni. Niðurstöður benda til þess að 67% borgarreknu leikskóla í Reykjavík og 40% einkareknu leikskólanna séu með skilgreinda áfallaáætlun að yfirfara þurfi og endurnýja verði áfallaáætlanir í mörgum leikskólanna í Reykjavík. Þá virðist þurfa að skýra hlutverk þjónustumiðstöðva hverfanna, t.d. við mótun áfallaáætlana skólanna og handleiðslu við áfallateymi. Í um 73% borgarreknu leikskólanna og 40% einkareknu leikskólanna eru skilgreind áfallateymi en ljóst er að víða þarf að skilgreina betur hlutverk þeirra og fara yfir hverjir eiga sæti í þeim. Þá vantar einnig mikið upp á að leikskólar séu með áfallaáætlanir sínar á heimasíðu skólans.