Sparnaðar- og neysluhegðun Íslendinga fyrir og eftir efnahagshrunið 2008

Verkefnið er lokað til 1.6.2018. Þegar skýrsla opnast má ekki afrita að hluta til eða í heild nema með leyfi höfundar. Skýrsla þessi er lokaverkefni mitt við Háskólann á Akureyri til B.Sc. gráðu við Viðskipta- og raunvísindasvið skólans. Skýrslan er hagnýtt verkefni og er unnið fyrir Sparnað ehf. Ra...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hulda Margrét Óladóttir 1983-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15762
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 1.6.2018. Þegar skýrsla opnast má ekki afrita að hluta til eða í heild nema með leyfi höfundar. Skýrsla þessi er lokaverkefni mitt við Háskólann á Akureyri til B.Sc. gráðu við Viðskipta- og raunvísindasvið skólans. Skýrslan er hagnýtt verkefni og er unnið fyrir Sparnað ehf. Rannsóknin fjallar um fjármálahegðun Íslendinga og er þar horft sérstaklega til sparnaðar- og neysluhegðunar. Rannsakandanum er ekki kunnugt um að rannsóknir hafi verið gerðar á fjármálahegðun Íslendinga að undanskyldum könnunum um fjármálalæsi sem framkvæmdar voru af Stofnun um fjármálalæsi. Markmið þessarar skýrslu er að rannsaka hvort efnahagshrunið 2008 hafi haft áhrif á fjármálahegðun Íslendinga. Sett er fram ein meginrannsóknarspurning: Hefur orðið breyting á fjármálahegðun Íslendinga fyrir og eftir efnahagshrunið2008? Til að kafa dýpra í rannsóknarefnið eru eftirtaldar þrjár undirspurningar settar fram til viðbótar: Hefur orðið breyting á sparnaði? Hefur neyslumynstur breyst? Hefur orðið breyting á því hversu auðvelt eða erfitt heimilin eiga með að ná endum saman? Notuð var megindleg rannsóknaraðferð og spurningalisti lagður fyrir í gegnum síma. Svarhlutfall var 62,4%. Spurningalistinn samanstóð af 48 spurningum, af þeim voru 11 spurningar notaðar við úrlausn rannsóknarinnar en svara við öðrum spurningum var aflað fyrir Sparnað ehf. Lykilorð: Sparnaðarhegðun, neysluhegðun, fjármálahegðun, fjármálalæsi, efnahagshrun. This is my thesis for a B.Sc degree at the School of Business and Science in the University of Akureyri. The thesis is a practical project prepared for the company Sparnaður ehf. The thesis entails a study on the financial behavior of Icelanders, in particular as regards savings and consumption. The author is unaware of any other comparable studies having been conducted in Iceland, save for studies on financial literacy, conducted by the Institute for Financial Literacy. The objective of the thesis is to study whether the financial collapse in 2008 affected the financial behavior of Icelanders. ...