Áhifarík upplýsingamiðlun

Verkefnið er lokað til 2.4.2133. Innri upplýsingamiðlun er sá hluti stjórnunarferilsins sem litla athygli hefur fengið hérlendis en verið töluvert rannsakað af fræðimönnum erlendis. Fræðimenn eru sammála um að hægt sé að greina og mæla gæði og virkni upplýsingamiðlunar meðal annars með tengslum innr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Iðunn Pétursdóttir 1974-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15758
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 2.4.2133. Innri upplýsingamiðlun er sá hluti stjórnunarferilsins sem litla athygli hefur fengið hérlendis en verið töluvert rannsakað af fræðimönnum erlendis. Fræðimenn eru sammála um að hægt sé að greina og mæla gæði og virkni upplýsingamiðlunar meðal annars með tengslum innri upplýsingamiðlunar við starfsánægju. Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að greina stöðu innri upplýsingamiðlunar í tengslum við starfsánægju innan Icelandair Ground Service (IGS). Rannsóknin var tilviksrannsókn þar sem megindlegri rannsóknaraðferð var beitt. Tekið var hentugleikaúrtak sem var starfsfólk farþegaafgreiðslunnar (FA) sem er ein fjögurra deilda IGS. CSQ spurningarlisti Downs og Hazen var notaður en aðlagaður að rannsóknartilvikinu. Þýði rannsóknarinnar var allt starfsfólk IGS alls 392 starfsmenn. Úrtakshópurinn var 78 starfsmenn FA og svarhlutfallið var 89%. Kannað var hvert viðhorf starfsfólks væri til innri upplýsingamiðlunar í tengslum við starfsánægju með áherslu á hvort að mismunur væri á viðhorfum starfsfólks eftir stöðuheitum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að jákvæð fylgni er á milli innri upplýsingamiðlunar og starfsánægju. Eftir því sem starfsfólk er ánægðari með upplýsingamiðlunina því ánægðari er það í starfi. Tölfræðiprófanir gáfu til kynna að munur væri á ánægju með upplýsingamiðlun á milli stöðuheita. Helstu styrkleikar upplýsingamiðlunarinnar hjá fyrirtækinu er að starfsfólk virðist vera nægilega upplýst til þess að sinna störfum sínum vel. Helstu veikleikarnir liggja í því að upplýsingamiðlunin er í of miklu magni óformleg sem getur leitt til þess að upplýsingar berast ekki til allra og eiga á hættu að riðlast þegar þær ganga manna á milli. Internal communication is a sector within the managerial process that has until now received little interest here in Iceland. However it has been studied to a considerable degree amongst scholars internationally. Theorists agree that it is possible to detect and measure the effectiveness of information flow, by comparing internal communication ...