Viðbótarlífeyrissparnaður : hversu meðvitað er fólk um sparnað sinn?

Verkefnið er lokað til 22.5.2018. Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Í verkefninu er fjallað um viðbótarlífeyrissparnað. Ef einstaklingur velur slíka sparnaðarleið er að mörgu að huga, enda fólk misjafnt eins og það er margt og vörsluaðilar og l...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragna Lóa Guðmundsdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15757
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 22.5.2018. Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Í verkefninu er fjallað um viðbótarlífeyrissparnað. Ef einstaklingur velur slíka sparnaðarleið er að mörgu að huga, enda fólk misjafnt eins og það er margt og vörsluaðilar og leiðir þeirra til ávöxtunar margar. Áhættuþol er misjafnt hjá einstaklingum en ýmsir líffræðilegir þættir geta haft áhrif þar á. Í þessu verkefni er „kyn“ og „aldur“ skoðað nánar út frá því hvernig áhættuþol einstaklings breytist í takt við þessa þætti. Áhættuþol segir okkur hversu mikla áhættu viðkomandi er tilbúinn að taka en áhætta getur verið margskonar og margbreytileg. Áhættan hefur áhrif á hvernig sparnaðurinn ávaxtast, en ávöxtun sparnaðarleiðar er einnig mikilvægur þáttur sem horft er til þegar kemur að því að velja vörsluaðila fyrir viðbótarlífeyrissparnaðinn. Vörsluaðilar geta ýmist verið innlendir eða erlendir. Verði erlendur aðili fyrir valinu þá er alltaf eitthver gengisáhætta sem fylgir og vert er að huga að því. Við rannsókn þessa var spurningakönnun lögð fyrir og niðurstöður hennar bornar saman við önnur opinber gögn og upplýsingar sem fengust á netinu um viðbótarlífeyrissparnað. This project is a final assignment for a B.Sc. degree in business administration. In this project a voluntary pension savings is closely reviewed. There are several important things individual needs to think about when he is selecting that kind an investment. People are as different as they are many and one way in savings for one person does not need to be the right one for another individual. People´s risk behaviour is different. Some biological factors can impact that behaviour, such as gender and age. This project will take a closer look at that. Risk behaviour tells us how much risk an individual is willing to take for his savings. Risk can affect the yield of the investment and that is something everybody should be aware of. The custodian´s are many and can be domestic and foreign. If individual chooses to put his ...