Fjármálalæsi : staða framhaldsskólanema á Akureyri

Þessi skýrsla fjallar um fjármálalæsi íslenskra framhaldsskólanema á Akureyri. Fyrri rannsóknir á þessu viðfangsefni hafa leitt í ljós að fjármálalæsi íslenskra framhaldsskólanema er mjög ábótavant sem og fjármálalæsi Íslendinga í heild. Viðfangsefnið hefur verið skýrsluhöfundi mjög ofarlega í huga...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birkir Örn Pétursson 1989-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15741
Description
Summary:Þessi skýrsla fjallar um fjármálalæsi íslenskra framhaldsskólanema á Akureyri. Fyrri rannsóknir á þessu viðfangsefni hafa leitt í ljós að fjármálalæsi íslenskra framhaldsskólanema er mjög ábótavant sem og fjármálalæsi Íslendinga í heild. Viðfangsefnið hefur verið skýrsluhöfundi mjög ofarlega í huga síðustu ár og var hugmyndin sú að undirstrika mikilvægi fjármálalæsis meðal ungs fólks og ýta undir umræðuna. Fjármálalæsi er mikilvægur þáttur í daglegu lífi einstaklinga og nauðsynlegt þáttur í þroska unglinga. Skýrslan skiptist í tvo hluta. Fyrsti hlutinn er fræðilegur þáttur um fjármálalæsi almennt og niðurstöður eldri rannsókna á viðfangsefninu. Í öðrum hluta skýrslunnar eru niðurstöður megindlegrar rannsóknar kynntar, þær túlkaðar og komið með tillögur til úrbóta. Settar voru fram tvær rannsóknarspurningar og voru þær eftirfarandi:  Er fjármálalæsi framhaldsskólanema á Akureyri ólíkt niðurstöðum fyrri rannsókna  Hvernig hefur fjármálalæsi þróast seinustu ár á Íslandi Niðurstöðurnar sýndu að ekki er marktækur munur á fjármálalæsi 18 ára framhaldsskólanema á Akureyri og niðurstöðum fyrri rannsókna. Ef eldri nemendum er hinsvegar bætt í úrtakið kemur í ljós að marktækur munur er á fjármálalæsi þess úrtaks og niðurstöðum fyrri rannsókna. Niðurstöðurnar sýndu jafnframt að fjármálakennsla er mjög lítil á vegum framhaldsskólanna. Niðurstöðurnar sýna einnig að nauðsynlegt er að ráðast í úrbætur á viðfangsefninu þar sem skortur á þekkingu á viðfangsefninu getur haft mikil áhrif á líf einstaklinga. Lykilorð: Fjármálalæsi, framhaldsskólar, fjármál, viðskiptafræði. This is a final thesis for a Bachelor of Science degree in business of administration at the University of Akureyri. This research report is about financial literacy among junior college students in Akureyri. Earlier researches have shown that the lack of financial literacy among junior college students is very high. The purpose of this thesis is to emphasize the importance of financial literacy. Financial literacy is important in everyday life for most ...