Hversu auðvelt er fyrir nýtt ferðaþjónustufyrirtæki að hasla sér völl og ná árangri á ferðaþjónustumarkaðnum á Norðurlandi eystra?

Verkefnið er lokað til 1.1.2030. Ferðaþjónusta á Íslandi hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár og sér ekki fyrir endann á því enn sem komið er. Einstök náttúra og umhverfi styrkir greinina mjög og býður upp á óendanlega möguleika til að njóta. Vetrarferðamennska er að mati höfundar vannýtt og ske...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sólrún Helga Birgisdóttir 1968-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15738
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 1.1.2030. Ferðaþjónusta á Íslandi hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár og sér ekki fyrir endann á því enn sem komið er. Einstök náttúra og umhverfi styrkir greinina mjög og býður upp á óendanlega möguleika til að njóta. Vetrarferðamennska er að mati höfundar vannýtt og skemmtilegt tækifæri. Það er því spennandi kostur að byggja upp fyrirtæki í ferðaþjónustu. Hröð þróun internetsins gerir einnig alla markaðssetningu miklu auðveldari og meira spennandi en áður var. Með því er hægt að vera í gangvirku sambandi við viðskiptavinina og þjónusta þá mun hraðar og betur en áður var. Þessu verkefni er ætlað að varpa ljósi á það hvernig lítið ferðaþjónustufyrirtæki markaðssetji sig og komi sér fyrir í greininni. Helstu niðurstöður þess leiddu í ljós að internetið er rauði þráðurinn gegn um allt markaðsstarf sem viðkemur ferðaþjónustu. Erlendir ferðamenn leita sér upplýsinga um ferðamáta og gistingu, en einnig leita þeir fróðleiks um land og þjóð á netinu áður en þeir heimsækja landið. Því eru heimasíður mikilvægur þáttur í markaðssetningu fyrirtækja á borð við þetta. Þar er mikilvægt að vinna hana rétt svo hún komi sem best út í leitarvélabestun. Hún þarf að innihalda öll þau orð sem viðskiptavinurinn leitar hugsanlega að til að koma sem fyrst upp í leitinni. Samfélagsmiðlarnir eru einnig mikilvægt tæki í markaðssetningu fyrirtækja. Samfélagsmiðlarnir Facebook og Twitter eru langvinsælastir, en með því að nýta þá vel er hægt að ná gríðarlegri útbreiðslu á skilaboðum. Þessir miðlar gefa einnig færi á gagnvirkum samskiptum þannig að hægt er að fá svörun frá viðskiptavininum mjög fljótt, sem auðveldar alla þjónustu. Einnig var gerð kostnaðaráætlun sem snýr að uppbyggingu verkefnisins og sundurliðuð rekstaraáætlun til þriggja ára. Þá var gerð arðsemisgreining til að meta fýsileika þess að ráðast í framkvæmdir. Tourism in Iceland has been considerable growth in recent years, and there is no sign of end yet. The unique nature and enviroment is our most strenght. that offers a lot of opportunity to ...