Millilandaflug til Akureyrar og áhrif á rekstur hótela og gistiheimila

Markmið þessa verkefnis var að skoða hvort hótel og gistiheimili beri aukinn hag af auknu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll þar sem rannsóknarspurningin var eftirfarandi: „Hver er hagur hótel- og gistiheimilareksturs á Akureyri ef beint millilandaflug eykst um Akureyrarflugvöll? Verkefnið snýst u...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Júlíus Fossdal 1986-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15736
Description
Summary:Markmið þessa verkefnis var að skoða hvort hótel og gistiheimili beri aukinn hag af auknu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll þar sem rannsóknarspurningin var eftirfarandi: „Hver er hagur hótel- og gistiheimilareksturs á Akureyri ef beint millilandaflug eykst um Akureyrarflugvöll? Verkefnið snýst um að kanna hvort um aukningu gistinótta á hótelum og gistiheimilum sé að ræða á þeim dögum sem flogið er í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll. Sýnt er fram á þá þróun sem hefur orðið í flugsamgöngum á Íslandi en þó sérstaklega á Akureyri. Einnig er þróun á framboði gistiplássa sem og gistinóttafjöldi erlendra ferðamanna á Akureyri dregin fram. Skoðað er sumarið 2011 og sumarið 2012 að mestu leyti vegna þeirra miklu breytinga í aukningu framboðs á millilandaflugi sem var á milli þessara ára. Í ljós kom að þegar flugin eru færri og miðuð við einn áfangastað, líkt og flug Iceland Express milli Akureyrar og Kaupmannahafnar sumarið 2011, var ekki um marktæka aukningu að ræða í gistinóttafjölda á hótelum og gistiheimilum. Sýnt er hinsvegar fram á að þegar flugin eru fleiri líkt og sumarið 2012 er marktæk aukning í fjölda gistinótta á þeim dögum sem millilandaflug er. Einnig er sýnt fram á að fylgni er á milli fjölda flugfarþega sem koma með millilandaflugi og fjölda gistinótta á flugdögum. Sú staðreynd að gistinóttafjöldi jókst meira á Akureyri en á landinu öllu milli sumra 2011 og 2012 sýnir að einhverju leyti þá aukningu ferðamanna sem komu með flugi til Akureyrar og nýttu sér þær gistingar sem eru í boði á hótelum og gistiheimilum. Lykilorð: Viðskiptafræði, Flugsamgöngur, Gistinætur, Erlendir ferðamenn, Fylgni The objective of this assignment is to research if hotels and guesthouses benefit from increased direct international flights to the airport of Akureyri. The research question is: „What are the benefits of hotels and guesthouses in Akureyri if the number of international flights to Akureyri‘s airport increase“. The purpose of the assignment is to correlate increase of overnight stays of foreign tourists in ...