Með góðum vilja hafið sjálft má brúa : að brúa bilið milli leik- og grunnskóla

Ritgerð þessi er lokaritgerð sem unnin er til B.Ed. prófs í kennarafræðum við Háskólann á Akureyri. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á þau tímamót í lífi barna þegar þau fara úr leikskóla yfir í grunnskóla. Farið er yfir lög og reglugerðir sem gefin hafa verið út af Alþingi, Mennta- og menni...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Anna Kristín Gunnarsdóttir 1990-, Katla Valdís Ólafsdóttir 1989-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15713
Description
Summary:Ritgerð þessi er lokaritgerð sem unnin er til B.Ed. prófs í kennarafræðum við Háskólann á Akureyri. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á þau tímamót í lífi barna þegar þau fara úr leikskóla yfir í grunnskóla. Farið er yfir lög og reglugerðir sem gefin hafa verið út af Alþingi, Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og sveitarfélögum um hvernig flutningi á milli skólastiga er háttað. Tekin voru viðtöl við skólastjórnendur tveggja grunnskóla sem staðsettir eru sinn í hvoru sveitarfélaginu. Viðtölin samanstóðu af 11 spurningum tengdum þeirra upplifun og því skipulagi sem skólarnir hafa þróað við flutning og aðlögun barna úr leikskóla yfir í grunnskóla. Niðurstöður viðtalanna leiddu meðal annars í ljós að að skólastjórnendum þykir mikilvægt að hlúa að þörfum og velferð barnanna við flutninginn úr leikskóla yfir í grunnskóla því að þessi breyting í lífi barna getur haft áhrif á skólagöngu þeirra síðar meir. Kvíði og óöryggi á meðal barna og foreldra er algengur við þessi tímamót og strax frá fyrsta degi aðlögunar í grunnskóla þarf að byggja upp traust og öryggi á meðal allra sem að barninu koma. Með því að nýta margskonar aðferðir við aðlögun barna við flutning úr leikskóla yfir í grunnskóla má draga úr viðbrigðum og kvíða. Þær aðferðir sem helst eru nýttar við aðlögun barnanna eru skólaheimsóknir í grunnskólann þar sem þau fá að kynnast starfinu og umhverfi skólans. This thesis is a final assignment towards B.Ed. degree in education science at the University of Akureyri. The purpose of this thesis is to shine a light on the turning point when children go from kindergarten to elementary school. Emphasis is on laws and regulations presented by the government about how to make this transition successful. Two principals were interviewed from separated elementary schools in two different communities. These interviews consisted of 11 questions related to their experience and how the schools have developed an adjustment plan for the children who are starting elementary school. The interviews showed that both ...