Grunnskólar Akureyrar : aðstaða til íþróttakennslu

Verkefnið er lokað til 31.12.2013. Á undanförnum áratugum hafa gríðarlegar breytingar átt sér stað á lífsstíl fólks í hinum vestræna heimi. Hreyfingarleysi og breytt mataræði valda miklum vanda fyrir heilbrigðiskerfið. Ósmitnæmir sjúkdómar sem tengdir eru lífsstíl munu sliga fjárhagslega best stæðu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhannes Gunnar Bjarnason 1962-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15707
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 31.12.2013. Á undanförnum áratugum hafa gríðarlegar breytingar átt sér stað á lífsstíl fólks í hinum vestræna heimi. Hreyfingarleysi og breytt mataræði valda miklum vanda fyrir heilbrigðiskerfið. Ósmitnæmir sjúkdómar sem tengdir eru lífsstíl munu sliga fjárhagslega best stæðu ríki heims ef ekki verður gripið til róttækra ráðstafana. Í þessari rannsóknarritgerð er athyglinni beint að aðstöðu grunnskólanna á Akureyri til íþróttakennslu. Úttekt á aðstæðum hvers skóla var framkvæmd af höfundi og spurningalisti um vinnuaðstæður lagður fyrir einn íþróttakennara úr hverjum grunnskóla bæjarins. Jafnframt er greint frá fjórum rannsóknum og fræðigreinum sem allar fjalla um lýðheilsu og þróun hennar á Íslandi síðustu áratugi. Vandlega er gerð grein fyrir þeim kröfum sem ný aðalnámskrá í íþróttum gerir til skóla, íþróttakennara, nemenda og ekki síst þeirrar aðstöðu sem til staðar þarf að vera. Megin rannsóknarspurning ritgerðarinnar er hvort grunnskólunum á Akureyri er mögulegt að framfylgja leiðarvísi aðalnámskrár miðað við þær aðstæður sem þeir búa við. Jafnframt er kannað hvort skólarnir uppfylli viðmið aðalnámskrár um kennslustundafjölda. Niðurstaða rannsóknarinnar er afdráttarlaus. Mikill aðstöðumunur er á milli skólanna til íþróttakennslu og aðstæður íþróttakennara til að uppfylla hæfnisviðmið aðalnámskrár eru mjög misjafnar. Staðfest var af íþróttafulltrúa Akureyrarbæjar og deildarstjóra Menntamálaráðuneytis að engar viðmiðunarreglur eru til um lágmarksaðstöðu og áhöld til íþróttakennslu og skólayfirvöld á Akureyri hafa engar samræmdar reglur um jafnan aðbúnað skólanna hvað varðar íþróttakennsluna. Í öllum rannsóknum og fræðigreinum sem greint er frá í ritgerðinni eru allar tillögur til mótvægisaðgerða á sama veg. Auka þarf vægi skipulagðra íþróttatíma í skólum og auka fræðslu um mataræði og afleiðingar hreyfingarleysis. Lýðgrundaðar aðgerðir eru óhjákvæmilegar og skólakerfið þarf að virkja gegn auknu hreyfingarleysi barna og ungmenna. In the last decades there have been drastic lifestyle ...