Leikur og einhverfa : stuðningur og aðferðir

Ritgerð þessi er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-gráðu á vormisseri 2013 við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í ritgerðinni er fjallað um einhverfu barna, hvernig hún lýsir sér, hvernig greining hennar fer fram og hversu mikilvægt það er að greina einhverfu snemma. Því næst er farið yfir ólíkar k...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurbjörg Viðarsdóttir 1986-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15698
Description
Summary:Ritgerð þessi er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-gráðu á vormisseri 2013 við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í ritgerðinni er fjallað um einhverfu barna, hvernig hún lýsir sér, hvernig greining hennar fer fram og hversu mikilvægt það er að greina einhverfu snemma. Því næst er farið yfir ólíkar kennsluaðferðir sem notaðar eru með einstaklingum á einhverfurófinu. Megináhersla er lögð á leik ungra barna og barna með einhverfu, hvernig stuðning og leiðbeiningar þau fá í leiknum. Hlutverka- og ímyndunarleikur hjá börnum er kynntur þar sem börn fá tækifæri til að herma eftir öðrum persónum eða jafnvel dýrum. Kenningar fræðimannanna Lev Vygotsky og Jean Piaget um leikinn eru kynntar lítillega. Erlend aðferð sem byggir á kenningu Vygotsky og notuð hefur verið til að bæta félagslega og táknræna leikfærni barna með einhverfu er að lokum skoðuð. Heimildir eru fengnar íslenskum og erlendum bókum og fræðigreinum, Aðalnámskrá leikskóla frá 2011, úr Barnaverndarlögum frá 2002 og einnig er leitað fanga í heimasíðum stofnanna. Kveikjan að þessari ritgerð tengist bæði mínu persónulega lífi og einnig áhuga mínum á leik sem helstu náms- og þroskaleið ungra barna. Reynt verður að leita svara við rannsóknarspurningum sem felur í sér hvernig leikur einhverfra barna lýsir sér, hvort hann sé frábrugðinn leik annarra barna og einnig hvernig börn með einhverfu eru studd og leiðbeint í leik. Helstu niðurstöður, eftir að hafa skoðað viðfangsefnið út frá ýmsum sjónarhornum, eru þær að börn læra mest í gegnum leik þegar þau sjálf fá að stjórna og skipuleggja hann. Helsti munur á leik hjá börnum með einhverfu og öðrum börnum er sá að táknrænn leikur getur verið mun seinni og getur félagsleg geta þeirra og takmörkuð tjáskipti einnig haft mikil áhrif og hindrað þau í leiknum. This essay is written for B.Ed. degree from the Social science department at the University of Akureyri. The essay talks about children with autism, how autism is described, how it is analyzed and how important it is to identify autism in children at early age. The ...