Faraldsfræði Streptococcus pneumoniae, S.pyogenes og Haemophilus sp. í leikskólabörnum árið 2013 og samanburður við fyrri ár

Faraldsfræði Streptococcus pneumoniae, S.pyogenes og Haemophilus sp. í leikskólabörnum árið 2013 og samanburður við fyrri ár Kristján Hauksson1, Helga Erlendsdóttir1,2, Karl G. Kristinsson1,2, Ásgeir Haraldsson1,3 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Sýklafræðideild Landspítalans, 3Barnaspítali Hringsins I...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristján Hauksson 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15470
Description
Summary:Faraldsfræði Streptococcus pneumoniae, S.pyogenes og Haemophilus sp. í leikskólabörnum árið 2013 og samanburður við fyrri ár Kristján Hauksson1, Helga Erlendsdóttir1,2, Karl G. Kristinsson1,2, Ásgeir Haraldsson1,3 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Sýklafræðideild Landspítalans, 3Barnaspítali Hringsins Inngangur: Streptococcus pneumoniae (pneumókokkar) eru algengar bakteríur í nefkoki barna og valda staðbundnum og alvarlegum ífarandi sýkingum á borð við heilahimnubólgu og blóðsýkingar. Þær hafa um sig fjölsykruhjúp og þekktar eru yfir 90 hjúpgerðir. Markmið rannsóknarinnar voru að kanna berahlutfall pneumókokka, S.pyogenes og Haemophilus sp. í nefkoki leikskólabarna, sýklalyfjanæmi þeirra og tengsl við ýmsa áhættuþætti, auk þess að hjúpgreina pneumókokka og bera niðurstöður saman við fyrri rannsóknir. Einnig að meta núverandi og líkleg framtíðaráhrif bólusetninga gegn pneumókokkum en árið 2011 hófst bólusetning gegn 10 algengustu hjúpgerðunum. Efni og aðferðir: Tekin voru 471 nefkokssýni úr leikskólabörnum frá 15 leikskólum í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík í mars 2013. Leitað var að pneumókokkum, S.pyogenes og Haemophilus sp. Gerð voru næmispróf og pneumókokkar hjúpgreindir með Latex kekkjunarprófi. Forráðamenn þátttakenda svöruðu spurningalista um sýklalyfjanotkun og heilsufar barnanna. Frá Landlæknisembættinu fengust upplýsingar um pneumókokka-bólusetningar barnanna. Niðurstöður: Berahlutfall pneumókokka var 65% og lækkar marktækt með hækkandi aldri (OR=0,81; p<0,05). Berahlutfallið sveiflast nokkuð milli ára. Berahlutfall pneumókokka með minnkað penisillín næmi var 9,6%, fór marktækt lækkandi með aldri (OR=0,61; p<0,001) og ef börn höfðu fengið sýklalyf sl. 30 daga voru þau í aukinni hættu að bera PNSP (OR=2,6; p<0,05). Berahlutfall pneumókokka meðal bólusettra barna (N=54) var 55,6% og berahlutfall PNSP var 3,7%. Bólusetning hafði marktæk verndandi áhrif gegn því að bera pneumókokka (OR=0,5; p<0,05) og PNSP (OR=0,21; p<0,05). Þrjár algengustu hjúpgerðirnar voru 19F, hjúpgerðarhópur G og 23F en ...