Niðurskurður í heilbrigðisþjónustu : réttur til heilsu í ljósi alþjóðaskuldbindinga landsins og möguleg brot

Verkefnið er lokað til 31.12.2033. Jafn réttur og jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu eru grundvallarmannréttindi sem allir skulu njóta án nokkurrar mismununar, bæði samkvæmt íslenskri löggjöf og alþjóðasamningum sem Ísland á aðild að. Í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 hefur verið töluverður nið...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elísabet Líf Magnúsdóttir 1990-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15459
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 31.12.2033. Jafn réttur og jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu eru grundvallarmannréttindi sem allir skulu njóta án nokkurrar mismununar, bæði samkvæmt íslenskri löggjöf og alþjóðasamningum sem Ísland á aðild að. Í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 hefur verið töluverður niðurskurður og meðfylgjandi hagræðingaraðgerðir í heilbrigðiskerfinu. Sumar heilbrigðisstofnanir landsins eru taldar komnar að þolmörkum og þar verður ekki skorið meira niður án þess að ganga þvert á lagaskuldbindingar landsins. Markmið lokaverkefnisins er að kanna hvort í einhverjum tilvikum sé farið gegn þessum réttindum einstaklinga með mögulegum mannréttindabrotum og þá um leið brotum gegn alþjóðaskuldbindingum landsins. Stjórnvöld hafa reynt að tryggja að heilbrigðisstofnanir landsins haldi lögbundnum hlutverkum sínum og að landsmenn njóti jafnra möguleika til þjónustunnar. Þegar rýnt er í sérstakar aðgerðir og atvik sem upp hafa komið í kjölfar niðurskurðarins er þó hægt að setja spurningamerki við það hvort slíkt hafi tekist sem skyldi. Afturfarir í heilbrigðisþjónustu geta talist árangursríkar með sparnað að leiðarljósi en slíkt getur augljóslega haft afleiðingar, verið vandasamt og jafnvel í andstöðu við fullgilda alþjóðasamninga þegar um er að ræða þjónustuskerðingar. Farið verður ítarlega í skuldbindingar landsins samkvæmt fullgildum Alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, en í 12. gr. samningsins er kveðið skýrt á um réttinn til heilsu. Heilbrigðisþjónusta á Íslandi er talin með þeim betri í Evrópu en þrátt fyrir það er það niðurstaða þessa verkefnis að finna má tilvik sem ganga gegn skuldbindingum landsins. Equal rights and access to health care are basic human rights that every human being shall enjoy without discrimination. Such is provided both by Icelandic laws, International Covenants and other declarations which Iceland is legally obliged to follow. Following the financial crisis in Iceland in 2008, significant cutbacks and rationalisations have been made to the ...