Mikilvægi þátttöku almennings í mótun borgarrýma

Í þessari ritgerð er fjallað um mikilvægi þess að íbúar í borgarsamfélögum hafi rétt til mótunnar og notkunnar borgarrýma sem og ákvarðanatöku er varða þessi rými. Stuðst er við kenningar fræðimannanna Michel de Certeau og Henri Lefebvre auk annarra greina. Í upphafi er fjallað um völd innan borgari...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: María Þórólfsdóttir 1986-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15435
Description
Summary:Í þessari ritgerð er fjallað um mikilvægi þess að íbúar í borgarsamfélögum hafi rétt til mótunnar og notkunnar borgarrýma sem og ákvarðanatöku er varða þessi rými. Stuðst er við kenningar fræðimannanna Michel de Certeau og Henri Lefebvre auk annarra greina. Í upphafi er fjallað um völd innan borgarinnar og hvernig rými geta orðið til á mismunandi vegu. Því næst fjalla ég um markaðsvæðingu almenningsrýma og hvaða áhrif hún hefur á „lifandi“ rými og sögurnar sem verða til þegar ferðast er um í borginni. Síðan er fjallað um Hjartagarðinn í miðborg Reykjavíkur í ljósi þessara hugmynda og spurningum um raunverulegt vald notenda rýmisins velt upp. Rannsóknin leiddi í ljós að aukin meðvitund og vilji eru á meðal borgaryfirvalda til að auka rétt íbúa til þátttöku í mótun borgarinnar. Hins vegar er þessi réttur mjög takmarkaður þar sem eignarréttur einkaaðila er honum sterkari.