Innra skipulag norskættaðra timburhúsa : þróun, einkenni og eiginleikar

Í dag er rúm öld liðin frá því að norskættuð timburhús voru einkennandi í mörgum byggðum landsins. Hús þessi hafa mörg hver hýst bæði starfsemi og heimili í gegnum árin, en færst hefur mjög í aukana að fólk komi sér fyrir í húsum af þessu tagi til frambúðar. Í ritgerðinni var sjónum beint að innra s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elísabet Sara Emilsdóttir 1989-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15429
Description
Summary:Í dag er rúm öld liðin frá því að norskættuð timburhús voru einkennandi í mörgum byggðum landsins. Hús þessi hafa mörg hver hýst bæði starfsemi og heimili í gegnum árin, en færst hefur mjög í aukana að fólk komi sér fyrir í húsum af þessu tagi til frambúðar. Í ritgerðinni var sjónum beint að innra skipulagi þessara húsa, en skoðuð voru ítarlega tvö norskættuð timburhús staðsett á Seyðisfirði. Húsin eru bæði byggð um aldamótin 1900, staðsett að Hafnargötu 44 og Vesturvegi 3. Hafnargata 44 hefur lengst af verið notuð undir starfsemi, en Vesturvegur 3 hefur nær alla tíð verið heimili. Kostir og gallar voru dregnir saman og skoðaðir, og jafnframt bornir saman við innra skipulag nýlegri húsa. Innra skipulag í norskættuðum timburhúsum gæti flokkast sem frekar almennt en sérhæft. Skipulagið býður uppá að auðvelt er að koma sér fyrir í því og laga eftir sínu höfði. Húsin virðast gædd kostum varðandi endurnýtingu og sveigjanleika innra skipulags sem vantar í mörg þeirra húsa sem byggð hafa verið á undanförnum áratugum. Hins vegar kom í ljós skortur á þjónusturýmum sem nútímalifnaðarhættir gera kröfu um.