Félagslegur stuðningur og andleg líðan í kjölfar efnahagsþrenginganna á Íslandi 2008: Framsýn ferilrannsókn

Efnahagsþrengingar geta haft fjölþættar afleiðingar fyrir einstaklinga, fjárhagslegar, líkamlegar, andlegar og félagslegar. Lítið er vitað um áhrif félagslegs stuðnings á samband efnahagsþrenginga og andlegrar heilsu. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna breytingar á félagslegum stuðningi frá ár...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Margrét Clarke 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15421
Description
Summary:Efnahagsþrengingar geta haft fjölþættar afleiðingar fyrir einstaklinga, fjárhagslegar, líkamlegar, andlegar og félagslegar. Lítið er vitað um áhrif félagslegs stuðnings á samband efnahagsþrenginga og andlegrar heilsu. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna breytingar á félagslegum stuðningi frá árinu 2007 (fyrir efnahagsþrengingarnar á Íslandi 2008) til ársins 2009 (í efnahagsþrengingunum) og einnig áhrif félagslegs stuðnings á samband efnahagshrunsins á streitu og þunglyndiseinkenni. Rannsóknin var framsýn ferilrannsókn sem náði til 3621 einstaklings sem svaraði spurningalistanum Heilsa og líðan Íslendinga bæði árið 2007 og 2009 um margvíslega heilsutengda þætti, s.s. upplifaðan félagslegan stuðning, streitu og einkenni þunglyndis. Upplifaður félagslegur stuðningur, bæði traust til nákominna og aðgengi að aðstoð frá nákomnum, var metinn með frumsömdum spurningum. Streita var metin með streitukvarðanum PSS-4 (Perceived Stress Scale) og einkenni þunglyndis með WHO-5 kvarðanum (WHO-five Well-being Index). Félagslegur stuðningur jókst milli 2007 og 2009 [traust: 41.29 - 44.32%; p=0.021 │ hjálp: 45.04 - 48.91%; p=0.001]. Streita [traust: aOR = 1.81; 95% CI 1.15 – 2.85 | hjálp: aOR = 3.13; 95% CI 2.01 – 4.86] og þunglyndiseinkenni [traust: aOR = 1.73; 95% CI 1.27 – 2.35 | hjálp: aOR = 2.05; 95% CI 1.48 – 2.82 ] jukust marktækt meðal þeirra einstaklinga sem höfðu minni félagslegan stuðning árið 2009 samanborið við árið 2007. Þunglyndiseinkenni jukust einnig meðal þess hóps sem hafði lítinn félagslegan stuðning bæði árið 2007 og 2009. Streita jókst einnig meðal þess hóps sem hafði góðan félagslegan stuðning (traust) bæði árið 2007 og 2009. Á hinn bóginn þá var gagnlíkindahlutfall (odds ratio) á þunglyndiseinkennum hærra hjá þeim sem höfðu aukinn félagslegan stuðning (hjálp) milli ára [aOR= 0.71; 95% CI 0.53 – 0.96] en samsvarandi niðurstöður varðandi streitu reyndust ekki marktækar. Niðurstöður þessar benda til þess að upplifaður félagslegur stuðningur hafi aukist í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi árið 2008. ...