Árangur endurlífgunar utan sjúkrahúsa á Íslandi árið 2012

Inngangur: Rannsóknir á árangri endurlífgunar á Íslandi hafa sýnt fram á 16-21% lifun að útskrift af sjúkrahúsi. Þær hafa eingöngu náð til höfuðborgarsvæðisins eða Akureyrar og einblínt á endurlífganir vegna bráðra hjartasjúkdóma. Markmið rannsóknarinnar er: 1. Að meta árangur endurlífgunar utan sjú...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bergþór Steinn Jónsson 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15382
Description
Summary:Inngangur: Rannsóknir á árangri endurlífgunar á Íslandi hafa sýnt fram á 16-21% lifun að útskrift af sjúkrahúsi. Þær hafa eingöngu náð til höfuðborgarsvæðisins eða Akureyrar og einblínt á endurlífganir vegna bráðra hjartasjúkdóma. Markmið rannsóknarinnar er: 1. Að meta árangur endurlífgunar utan sjúkrahúsa á árinu 2012 með tilliti til helstu áhrifaþátta. 2. Að kanna hvort munur sé á árangrinum milli höfuðborgarsvæðisins (hbs.), landsbyggðar þar sem atvinnu sjúkraflutningalið er á vakt allan sólarhringinn (þéttbýli) og landsbyggðarinnar þar sem hlutastarfandi sjúkraflutningamenn eru á bakvöktum (dreifbýli). 3. Að niðurstöðurnar verði hluti af EuReCa (European Registry of Cardiac arrest) og nýtist því til fjölþjóðlegra rannsókna á árangri endurlífgunar. Efniviður og aðferðir: Fengnar voru skýrslur sjúkraflutningamanna eða lækna úr endurlífgunum utan sjúkrahúsa á árinu 2012 frá öllum rekstraraðilum sjúkraflutninga á Íslandi. Upplýsingar um viðbragðstíma sjúkrabíls fengust hjá Neyðarlínunni og upplýsingar um útskrift af sjúkrahúsi fengust úr sjúkraskrám á Landspítala og sjúkrahúsinu á Akureyri. Við úrvinnsluna var Utstein staðlinum fylgt. Kí-kvaðrat próf og t-próf voru notuð við tölfræðilega úrvinnslu og miðað við α=0,05 marktæktarkröfu. Niðurstöður: Upplýsingar fengust um 145 endurlífganir á landinu öllu en í 2 tilfellum fengust ekki upplýsingar um útskrift af sjúkrahúsi. Í 22 tilvikum voru sjúkraflutningamenn vitni að hjartastoppinu þar af útskrifuðust 8 (36,4%). Í 9 af þessum 22 tilvikum voru sjúklingar með stuðvænlegan upphafstakt þar af útskrifuðust 8 (88,9%). Eftirfarandi uppgjör byggir á þeim 121 endurlífgun þar sem sjúkraflutningamenn voru ekki vitni og upplýsingar um útskrift lágu fyrir. 70 endurlífganir fóru fram á hbs þar af útskrifuðust 13 (19%). Í þéttbýli utan hbs voru 21 endurlífgun þar af útskrifuðust 7 (33%). Í dreifbýli voru 30 endurlífganir þar af útskrifuðust 2 (7%) (p=0,05). Ef aðeins var miðað við tilfelli þar sem vitni var að hjartastoppi og sjúklingur var í stuðvænlegum takti voru 18 tilfelli ...