Gerendur eineltis: Orsakir og afleiðingar

Einelti er þekkt vandamál á Íslandi og geta afleiðingar þess verið alvarlegar sé ekkert að gert. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að sýna fram á alvarleika afleiðinganna sem það getur haft á einstaklinga að vera viðriðin einelti, sérstaklega með tilliti til gerenda. Það er þeirra vegna sem mik...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Helga María Guðmundsdóttir 1985-, Valgerður Bára Bárðardóttir 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15359
Description
Summary:Einelti er þekkt vandamál á Íslandi og geta afleiðingar þess verið alvarlegar sé ekkert að gert. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að sýna fram á alvarleika afleiðinganna sem það getur haft á einstaklinga að vera viðriðin einelti, sérstaklega með tilliti til gerenda. Það er þeirra vegna sem mikilvægt er að leita orsaka eineltis en þær eru að finna hjá gerendum. Könnuð voru helstu úrræði sem sem beitt er við úrvinnslu eineltismála og farið var yfir forvarnir sem notast er við. Heimilda var aflað í gagnagrunnum SciVerse, Scopus, Eric, Pubmed og GoogleScholar með því að slá m.a. inn leitarorðin einelti, gerendur, orsakir og afleiðingar. Heimildaskrár greina sem reyndust leiðandi á þessu sviði voru einnig notaðar til heimildaleitar. Til eru ákveðnir áhættuþættir sem auka líkurnar á því að einstaklingur leiðist út í eineltishegðun. Dæmi um slíka áhættuþætti eru léleg tengslamyndun við foreldra og heimilisofbeldi. Gerendur eineltis geta haft önnur samhliða vandamál sem geta verið orsök eða afleiðing eineltis en erfitt getur reynst að greina þar á milli. Sem dæmi má nefna aukin áfengisneysla, reykingar, námserfiðleikar og atferlisvandi. Framtíðarhorfur þeirra verið bágar ef ekkert er að gert, sem dæmi má nefna árásahneigð, aukin afbrotahneigð og auknar sjálfsvígstilraunir. Skólahjúkrunarfræðingar, kennarar, foreldrar og aðrir starfsmenn grunnskóla þurfa að vinna í sameiningu að forvörnum og meðferð eineltismála til að bestu úrlausnir fáist. Bullying is a known problem in Iceland and its affects can be severe if left untreated. The purpose of this theoretical overview was to demonstrate the seriousness of the consequences that it can have on individuals to be involved in bullying, particularly with regard to perpetrators. It is because of them that it is important to look for causes of bullying, but they are to be found in perpetrators. The main resources that can be used to handle bullying and the prevention methods were investigated. Sources were obtained in the following databases: SciVerse, Scopus, Eric, ...