Mat á óæskilegri hegðun yfirmanna í íslenskum fyrirtækjum

Í þessari rannsókn voru fyrstu skrefin tekin í þróun spurningalista sem ætlað er að meta óæskilega hegðun yfirmanna á Íslandi. Fram að þessu hefur slíkur spurningalisti ekki verið til hér á landi. Spurningalisti var þróaður með hliðsjón af erlendu flokkunarkerfi og rýnihópum sem unnir voru hér á lan...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigurbjörg Sigurpálsdóttir 1981-, Vigfús Fannar Rúnarsson 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15350
Description
Summary:Í þessari rannsókn voru fyrstu skrefin tekin í þróun spurningalista sem ætlað er að meta óæskilega hegðun yfirmanna á Íslandi. Fram að þessu hefur slíkur spurningalisti ekki verið til hér á landi. Spurningalisti var þróaður með hliðsjón af erlendu flokkunarkerfi og rýnihópum sem unnir voru hér á landi. Eftir þróun spurningalistans var hann forprófaður, hann var lagður fyrir 180 þátttakendur úr þremur fyrirtækjum í Reykjavík. Fyrirlögn listans fór fram í gegnum netið. Á listanum voru 41 atriði óæskilegrar hegðunnar og vitneskja mældist fyrir þau öll. Munur var á meðaltölum fyrirtækja, það bendir til þess að óæskileg hegðun sé breytileg þeirra á milli og að hana sé hægt að mæla. Enginn munur var á þátttakendum eftir kyni, aldri eða starfsaldri. Hægt var að mynda kvarða út frá þáttagreiningu þar sem 18 algengustu atriði spurningalistans voru notuð. Þennan kvarða er hægt að nota til þess að meta óæskilega stjórnunarhætti yfirmanna á íslenskum vinnustöðum. Efnisorð: Sálfræði, Vinnusálfræði, Óæskileg hegðun