Ofþyngd meðal barna á grunnskólaaldri. Fræðileg úttekt á meðferðum fyrir börn yfir kjörþyngd

Offita er vaxandi vandamál jafnt hjá fullorðnum og börnum í nútíma samfélagi og er Ísland þar ekki undanskilið. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að varpa ljósi á þekkingu um orsakir offitu barna og um meðferðarúrræði sem standa til boða fyrir börn yfir kjörþyngd, einkum með hliðsjón af hlutver...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Rebekka Rut Skúladóttir 1988-, Dagrún Ása Ólafsdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15331
Description
Summary:Offita er vaxandi vandamál jafnt hjá fullorðnum og börnum í nútíma samfélagi og er Ísland þar ekki undanskilið. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að varpa ljósi á þekkingu um orsakir offitu barna og um meðferðarúrræði sem standa til boða fyrir börn yfir kjörþyngd, einkum með hliðsjón af hlutverki hjúkrunarfræðinga gegn þróun ofþyngdar. Leitað var eftir rannsóknum og fræðilegum heimildum á gagnagrunnum Scopus, Pubmed, Web of Science og víðar. Rannsóknir sýna að offita getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir andlega og líkamlega heilsu eins og geðræna kvilla, hjarta- og æðasjúkdóma og efnaskiptasjúkdóma. Samfara aukinni tíðni ofþyngdar hérlendis hefur þörfin fyrir heilsueflingu aukist en forvarnarstarf hefur stóreflst á síðastliðnum áratug. Mikilvægt er að sporna gegn þróun offitu barna. Helstu meðferðir fyrir börn í ofþyngd miða að því að ná jafnvægi milli orkuneyslu og hreyfingu barna án þess að hindra eðlilegan vöxt barnsins og þroska þess. Jafnframt hefur góður meðferðarárangur hlotist með þátttöku foreldra í meðferð barna gegn ofþyngd. Skólahjúkrunarfræðingar gegna mikilvægu hlutverki í heilsueflingu nemenda og eru í lykilhlutverki til að hafa jákvæð áhrif á forvarnarstarf innan skólans. Niðurstöður sýna að auka þarf áherslu á meðferðaúrræði fyrir börn yfir kjörþyngd en skortur er á meðferðarúrræðum hérlendis. Lykilorð: Hjúkrunarfræði, offita barna, forvarnir, meðferðir, hlutverk skólahjúkrunarfræðinga, hlutverk foreldra. Obesity is a growing problem among both adults and children in modern society and Iceland is no exception. The purpose of this literature review is to cast a light on the knowledge of the cause of childhood obesity and the therapeutic treatments available for overweight children, especially in relation to the role of nurses in the countering obesity. Various academic articles and research has been accessed through Scopus, Pubmed, Web of Science and beyond. Research shows that obesity can have drastic consequences for mental and physical health as well as psychological, ...