Verkjamat á legudeildum skurð- og Lyflækningasviða Landspítala

Verkir eru algengt viðfangsefni hjúkrunarfræðinga en rannsóknir sýna að tíðni verkja hjá sjúklingum á sjúkrahúsum er frá 52% til 80% ef skoðuð er skráning undanfarinn sólarhring. Ófullnægjandi meðhöndlun verkja hefur margþætt neikvæð áhrif á sjúklinginn. Verkjamat leggur grunninn að árangursríkri ve...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Björg Jakobína Þráinsdóttir 1967-, Bryndís Theresia Gísladóttir 1973-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15235
Description
Summary:Verkir eru algengt viðfangsefni hjúkrunarfræðinga en rannsóknir sýna að tíðni verkja hjá sjúklingum á sjúkrahúsum er frá 52% til 80% ef skoðuð er skráning undanfarinn sólarhring. Ófullnægjandi meðhöndlun verkja hefur margþætt neikvæð áhrif á sjúklinginn. Verkjamat leggur grunninn að árangursríkri verkjameðferð. Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgð á verkjamati í starfi sínu og eru í lykilaðstöðu til að greina verki og veita góða verkjameðferð. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvernig verkir eru metnir og skráðir á legudeildum skurð- og lyflækningasviða Landspítala. Rannsóknin var lýsandi þversniðsrannsókn (point prevalence) en skoðuð var skráning á 23 legudeildum alls og fór gagnasöfnunin fram dagana 13. og 19. janúar 2011 úr rafrænum og skriflegum sjúkraskrám með spurningarlista rannsóknaraðila. Gögnum var safnað um 386 sjúklinga af sjö deildum af skurðlækningasviði og 16 deildum af lyflækningasviði. Hjúkrunargreiningin verkir var til staðar í rúmlega helmingi tilvika (52,8%) og var greiningin algengari á skurðlækningasviði (66,1%) en lyflækningasviði (47,1%), p<0,05. Verkjamat var skráð í sjúkraskrá í 58,6% tilvika en viðurkenndur staðlaður verkjamatsskali var sjaldan notaður við verkjamatið eða í 11,3% tilfella. Tímasetning verkjamats það er hvort það var gert fyrir eða eftir meðferð var sjaldan skráð (13,0%). Skráning á líkamsstöðu sjúklings við verkjamat var mjög lítil (5,4%) en staðsetning verkjanna var skráð í 24,1% tilfella. Önnur skráning hjúkrunarfræðinga á verkjum kom fram í tæplega helmingi tilvika (40,9%). Skráning verkja og verkjamat á legudeildum á skurð- og lyflækningasviðum Landspítala er ófullnægjandi. Þörf er á úrbótum til að bæta mat og skráningu verkja. Lykilorð: verkjamat, verkir, hjúkrunarskráning, verkjaskalar, sjúkrahús The assessment and management of pain is a common nursing practice. Research has shown that the prevalence of pain in hospitalized patients is between 52 and 80%. Inadequate management of pain has negative effects on the patient’s quality of life. Pain assessment is ...