Hallamælingar í Búrfellsgjá sumarið 2012

Um Reykjanes liggja plötuskil Evrasíuflekans og Norður-Ameríkuflekans, sem valda jarðhræringum og eldgosahrinum. Ummerki um plötuskilin sjást á eldstöðvakerfum og sprungusveimum, en á Reykjanesinu eru fjögur eldstöðvakerfi; Reykjanes, Krýsuvík, Brennisteinsfjöll og Hengill. Frá sumrinu 2009 hefur or...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Traustadóttir 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15226
Description
Summary:Um Reykjanes liggja plötuskil Evrasíuflekans og Norður-Ameríkuflekans, sem valda jarðhræringum og eldgosahrinum. Ummerki um plötuskilin sjást á eldstöðvakerfum og sprungusveimum, en á Reykjanesinu eru fjögur eldstöðvakerfi; Reykjanes, Krýsuvík, Brennisteinsfjöll og Hengill. Frá sumrinu 2009 hefur orðið vart við töluverðar þenslu- og sighreyfingar við Krýsuvík með GPS landmælingum, sem voru síðan staðfestar með InSAR mælingum. Ákveðið var að athuga hvort þessar hreyfingar hefðu áhrif annars staðar á sprungusveiminum og voru þ.a.l. framkvæmdar hallamælingar í Búrfellsgjá sumarið 2012. Búrfell er gígur í Krýsuvíkurkerfinu sem myndaðist við gos á sprungu fyrir um 7.300 árum. Við gosið myndaðist mikil hrauntröð, sem liggur í norðvestur frá gígnum. Þessi hrauntröð var hallamæld sumarið 2012 og voru mælingarnar bornar saman við mælingar sem framkvæmdar höfðu verið á árunum 1966-1970 og 1980 til að skoða þær lóðréttu hreyfingar sem hafa átt sér stað á sprungusveiminum. GPS landmælingar voru einnig framkvæmdar á fjórum punktum en einn punkturinn hefur verið mældur frá 1993, á meðan verið var að framkvæma fyrstu mælingu á hinum þremur punktunum. Hallamælingarnar sýna áframhaldandi sig á sprungusveiminum en mælingarnar sýna að sighraðinn hefur minnkað. Talið er líklegt að ástæðan fyrir þessu sigi sé að sprungusveimurinn sem hallamælingalínan stendur á sé að gliðna. The divergent plate boundary between the Eurasian and the North-American plate lie through Iceland. On Reykjanes Peninsula, where the plate boundary rises from sea, earthquakes and volcanic episodes are common. Four volcanic systems lie en echelon along the Reykjanes Peninsula; Reykjanes, Krýsuvík, Brennisteinsfjöll and Hengill. From the summer of 2009 the area around Krýsuvík geothermal area has been experiencing inflating and subsiding episodes. It was first detected with GPS measurements but later confirmed with InSAR data. In the summer of 2012 a levelling profile in Búrfellsgjá, perpendicular to the Krýsuvík fissure swarm, was remeasured to see if any ...