Verkjameðferð eftir skurðaðgerð hjá einstaklingum með vímuefnavanda

Eftirfarandi heimildarsamantekt er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Tilgangur ritgerðarinnar er að fjalla um verkjameðferð og þá sérstaklega verkjameðferð eftir aðgerð hjá einstaklingum sem glíma við fíknivanda. Ófullnægjandi verkjameðferð er algengt vandamál h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurrós Heiða Guðnadóttir 1974-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15221
Description
Summary:Eftirfarandi heimildarsamantekt er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Tilgangur ritgerðarinnar er að fjalla um verkjameðferð og þá sérstaklega verkjameðferð eftir aðgerð hjá einstaklingum sem glíma við fíknivanda. Ófullnægjandi verkjameðferð er algengt vandamál hér á landi, sem og víða um heim, en ómeðhöndlaðir verkir hafa neikvæð áhrif á bata sjúklings sem og lífsgæði hans. Fíklar sem leggjast inn á spítala eiga rétt á sömu verkjameðferð og aðrir sem ekki eru haldnir fíkn. Þrátt fyrir það finna þeir oft fyrir fordómum í heilbrigðiskerfinu með þeim afleiðingum að þeir fá jafnvel ekki verkjameðferð við hæfi. Höfundur ræddi við tvo fíkla um reynslu þeirra af verkjameðferð í tengslum við sjúkrahúsinnlögn og kom fram að þeir hefðu fundið fyrir fordómum með þeim afleiðingum, að þeirra mati, að verkjameðferð var ekki fullnægjandi. Fræðsla og þjálfun í málefnum tengdum fíkn getur aðstoðað við að gera hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki betur kleift að takast á við þennan sjúklingahóp af öryggi og færni. Skilningur á vandamálum þessara einstaklinga er stór þáttur í því að geta myndað traust meðferðarsamband sem byggir á því að halda trúnað og að vera laus við fordóma gagnvart þessum hópi. Fíkill sem leggst inn á spítala þarf á stuðningi að halda til þess að geta tekist á við fíkn sína en það er í hlutverki hjúkrunarfræðinga að bjóða þeim upp á þau úrræði sem í boði eru. Lykilhugtök: verkjamat og meðferð, fíkn, fíkill, fordómar, fræðsla og stuðningur This literature review is a graduating thesis for a B.S. degree in nursing from the University of Akureyri. The purpose of this paper is to describe pain management, specifically pain management for addicts after surgery. Inadequate treatment of pain is a common problem in this country as well as internationally but untreated pain can have a negative impact on the recovery of the patient and the quality of life. An individual with a dependence syndrome who is admitted to hospital is entitled to the same pain management ...