„Þau taka alltaf á móti mér, já eins og manneskju, ekki eins og geðsjúklingi“ : upplifun skjólstæðinga af þjónustu geðdeildar FSA

Skjólstæðingsmiðuð þjónusta hefur verið skoðuð í auknu mæli undanfarin ár bæði frá sjónarhorni fagaðila og skjólstæðinga. Ýmsar hindranir hafa komið í ljós við framkvæmd þjónustunnar sem tengjast fagaðilum, skjólstæðingum, þjónustukerfi og samspili þar á milli. Forsendur þessarar rannsóknar er sú að...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Dagný Linda Kristjánsdóttir 1980-, Steinunn Fjóla Birgisdóttir 1985-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15214
Description
Summary:Skjólstæðingsmiðuð þjónusta hefur verið skoðuð í auknu mæli undanfarin ár bæði frá sjónarhorni fagaðila og skjólstæðinga. Ýmsar hindranir hafa komið í ljós við framkvæmd þjónustunnar sem tengjast fagaðilum, skjólstæðingum, þjónustukerfi og samspili þar á milli. Forsendur þessarar rannsóknar er sú að skjólstæðingsmiðuð þjónusta auki ánægju skjólstæðinga og skili betri árangri í heilbrigðiskerfinu og byggir verkefnið á hugmyndafræðinni um skjólstæðingsmiðaða nálgun. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun einstaklinga með geðræn veikindi af þjónustu geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri (FSA) og að hve miklu leyti hún samræmdist grundvallarþáttum skjólstæðingsmiðaðrar þjónustu. Leitast var við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvernig samræmist upplifun skjólstæðinga, af þjónustu geðdeildar FSA, grundvallarþáttum skjólstæðingsmiðaðs starfs? Rannsóknin er eigindleg og vinnulag grundaðrar kenningar var notað við greiningu gagna. Gagnaöflun fór fram með viðtölum við sex fyrrverandi skjólstæðinga geðdeildar FSA á aldrinum 19 til 46 ára sem voru valdir með markmiðsúrtaki. Viðtalsramminn byggði á grundvallarhugtökum skjólstæðingsmiðaðs starfs. Niðurstöður bentu til þess að þátttakendur voru almennt ánægðir með þjónustu geðdeildar FSA og var viðmót og samvinna starfsfólks, val á viðfangsefnum og fræðsla helstu kostir deildarinnar. Þjónustan samræmdist að töluverðu leyti grundvallarþáttum skjólstæðingsmiðaðs starfs og það kom skýrt fram hvernig þjónustukerfið og starfsfólkið ýmist stuðlaði að eða hindraði skjólstæðingsmiðaða þjónustu. Það sem þarf einna helst að huga að er aðkoma þátttakenda í ákvörðunartöku og auka þarf fræðslu til aðstandenda svo að þeir geti verið virkir þátttakendur í þjónustuferlinu. Einnig þarf að skoða samskipti og upplýsingaflæði milli fagaðila til að tryggja samræmi og skýrari stefnu í þjónustunni. Lykilhugtök: Skjólstæðingsmiðuð þjónusta, geðræn veikindi, upplifun skjólstæðinga. Client-centred practice has been studied more and more over the past years both from a professional ...