Dreifing bergefna á Austurgosbelti Íslands

Markmið þessa verkefnis var að kanna nýjar aðferðir við að koma efnagreiningum bergsýna á framfæri með landupplýsingakerfi. Framsetning bergefnagreininga hefur í gegnum árin einkennst af gröfum og töflum tengdum einstökum eldstöðvum eða kerf- um. Ákveðið var að skoða gosberg á Austurgosbeltinu og dr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arna Dögg Tómasdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15185
Description
Summary:Markmið þessa verkefnis var að kanna nýjar aðferðir við að koma efnagreiningum bergsýna á framfæri með landupplýsingakerfi. Framsetning bergefnagreininga hefur í gegnum árin einkennst af gröfum og töflum tengdum einstökum eldstöðvum eða kerf- um. Ákveðið var að skoða gosberg á Austurgosbeltinu og dreifingu mældra frumefna innan þess. Austurgosbeltið var valið vegna mikils breytileika bergtegunda innan svæðisins. Þar er að finna gosberg frá öllum þremur bergröðum Íslands, þóleiísku-, milli- og alkalísku bergröðinni. Bergsýnin eru öll frá nútíma og síð-jökultíma og fengin úr Jaspis, berg- og steindagagnagrunni Náttúrufræðistofnunar Íslands. Not- ast var við landupplýsingakerfið ArcGIS frá ESRI sem er landupplýsingaforrit sem eru mikið notuð hér á landi. Niðurstöður sýndu að með brúunarreikningum (interpolation) þar sem notast er við Natural Neighbour aðferð má fá góða mynd af dreifingu bergefna á stóru svæði. Megineldstöðvar gosbeltisins voru auðgreinanlegar frá öðrum svæðum af sinni sér- stöku efnasamsetningu og á kortum sem sýna dreifingu efna kemur fram greinilegur breytileiki milli þóleiísku og alkalísku bergraðanna. Vankostir við þetta verkefni voru þeir að bergefnagreiningar sýna sem notast var við voru yfirleitt tengd mjög af- mörkuðum rannsóknasvæðum. Áreiðanlegri reiknilíkön fengjust með meiri dreifingu sýnatökustaða. The aim of this study was to explore new ways in displaying rock chemical analyses. Traditionally, analyses of rock samples have been presented in graphs and tables associated with individual volcanoes or volcanic systems. The Eastern Volcanic Zone was chosen as a test site and distribution of elements from analysed rock samples mapped within that site. The Eastern Volcanic Zone was chosen because of its diversity in rock composition. Within this volcanic zone all three igneous rock series of Iceland can be found, the tholeiitic- , alkalic- and transitional alkalic system. The rock samples used for this study are all from either the Holocene period or the Late-Pleistocene period. The ...