Inngrip í fæðingarferlið: Fagleg úttekt

Rannsóknir benda til þess að inngripum í fæðingarferlið fari fjölgandi. Tíðni inngripa eins og framköllun fæðingar og notkun mænurótardeyfingar hefur aukist jafnt og þétt síðastliðin ár hér á landi líkt og í löndunum í kringum okkur. Til eru tölur hér á landi um tíðni ýmsa inngripa en ekki hefur áðu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hildur Sólveig Ragnarsdóttir 1970-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15165
Description
Summary:Rannsóknir benda til þess að inngripum í fæðingarferlið fari fjölgandi. Tíðni inngripa eins og framköllun fæðingar og notkun mænurótardeyfingar hefur aukist jafnt og þétt síðastliðin ár hér á landi líkt og í löndunum í kringum okkur. Til eru tölur hér á landi um tíðni ýmsa inngripa en ekki hefur áður verið skoðað ítarlega hvaða ábendingar liggja að baki né hvernig skráningu er háttað. Tilgangur þessa verkefnis var að skoða algengustu inngrip sem viðhöfð eru á fæðingardeild og í Hreiðrinu á Landspítalanum. Markmiðið var að skoða tíðni og skráningu inngripanna, sérstaklega hvort skráð var ástæða og hvort skýrar ábendingar fyrir inngripunum hafi verið fyrir hendi. Þetta er fagleg úttekt með þversniði og stuðst er við lýsandi tölfræði. Úrtakið var allar fæðingar á Landspítalanum einn tiltekinn mánuð. Rýnt var í hverja mæðraskrá með það fyrir augum að skrá tíðni ákveðinna breyta, hvort ábending var skráð og hvort sú ábending hafi verið skýr. Niðurstöður úttektarinnar gefa til kynna að tíðni og notkun ákveðinna inngripa fari fjölgandi á Landspítalanum sem er í takt við það sem sést í fræðilegum heimildum. Meiri samræmingu mætti gæta í skráningu á notkun inngripa og að ábendingar séu skýrari. Skráning ákveðinna inngripa er mjög góð og þá sérstaklega þar sem skráning er auðveld. The rate of interventions in the birthing process is increasing. Interventions such as induction of labour and the use of epidural anaesthesia have increased here in Iceland as they have in the countries around us. Statistical information about the frequency of interventions in Iceland is available, but the indications and documentation of interventions have not been viewed in detail. The purpose of this study was to examine the most common interventions that are carried out in the two labour wards at Landspítali National University Hospital. The objective was to examine the incidence and documentation of interventions, especially the recorded indication for performing a particular intervention and whether the indications were reasonable. This ...