„Maður getur ekki verið dauður allan tímann.“ Um andhetjuna Hlyn Björn í 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason

Í þessari ritgerð er fjallað um aðalpersónu skáldsögu Hallgríms Helgasonar, 101 Reykjavík (1996), út frá hugmyndum um andhetjur og eðli þeirra. Hin dæmigerða andhetja er utangarðs í eigin samfélagi og hagar lífi sínu jafnan á skjön við helstu venjur og gildi þess. Hlynur Björn, höfuðpersóna 101 Reyk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Hjartardóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/15035
Description
Summary:Í þessari ritgerð er fjallað um aðalpersónu skáldsögu Hallgríms Helgasonar, 101 Reykjavík (1996), út frá hugmyndum um andhetjur og eðli þeirra. Hin dæmigerða andhetja er utangarðs í eigin samfélagi og hagar lífi sínu jafnan á skjön við helstu venjur og gildi þess. Hlynur Björn, höfuðpersóna 101 Reykjavíkur, fellur óneitanlega undir þá skilgreiningu og hér er hann borinn saman við aðrar bókmenntapersónur af svipuðum toga og eru tengingar milli þeirra kannaðar. Tengsl má finna milli bókarinnar og fyrstu samtímasagnanna úr Reykjavík og eru þau rannsökuð frekar með áherslu á sameiginleg einkenni sem finna má hjá aðalpersónunum. Verkið er jafnframt skoðað í samhengi við viðurkennda fyrirmynd sína, Hamlet eftir Shakespeare, og er Hlynur Björn einnig borinn saman við þekkta andhetju í skáldsögu Alberts Camus, Útlendingurinn (1942). Persóna hans er greind út frá kenningum Camus um absúrdismann og andhetjan staðsett innan þeirrar stefnu. Andhetjueðli Hlyns Björns kemur einkar vel fram samskiptum hans við kvenpersónur bókarinnar og eru þau sambönd hans gaumgæfð. Samband hans við móður sína er kannað út frá meintri ödipusarduld hans og ótti hans við nútíma konuna er skoðaður í ljósi hugmynda um karlmanninn sem óþarfan. Að lokum er litið á klámáhorf hans og vefsamskipti við hitt kynið og hvernig þessi atriði undirstrika það andhetjueinkenni hans að forðast skuldbindingar og hafna dæmigerðum venjum samfélagsins.