Ó borg, mín borg: Borgin og íslensk samtímaljóðlist

Í þessari ritgerð verður fjallað um ljóð og hvaða áhrif orgarsamfélagið hefur á þau, sérstaklega á Íslandi þar sem Reykjavík er um margt frábrugðin stórborgum erlendis. Fjallað verður um eðli borga almennt og um þá togstreitu sem skapast milli sveitarinnar og borgarinnar sem kemur svo oft sterkt fra...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gréta Sigríður Einarsdóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14925
Description
Summary:Í þessari ritgerð verður fjallað um ljóð og hvaða áhrif orgarsamfélagið hefur á þau, sérstaklega á Íslandi þar sem Reykjavík er um margt frábrugðin stórborgum erlendis. Fjallað verður um eðli borga almennt og um þá togstreitu sem skapast milli sveitarinnar og borgarinnar sem kemur svo oft sterkt fram í bókmenntum. Einnig verður rætt um hvernig borgir hafa hingað til birst í bókmenntum, þá sérstaklega á síðustu öldum þegar borgin eins og við þekkjum hana í dag varð til. Þá verður fjallað sérstaklega um Reykjavík og aðstæður á Íslandi. Reykjavík er minni en þær stórborgir sem algengast er að ljóðskáld yrki um og væri í mörgum löndum varla talin meira en lítill bær, að minnsta kosti ekki höfuðborg. Einnig er stutt síðan Reykjavík varð til sem borg og hefð fyrir borgarljóðum því ekki löng á Íslandi. Teknar verða fyrir fjórar ljóðabækur eftir unga íslenska höfunda. Þær hafa allar komið út á síðustu árum og skoðað verður hvaða áhrif borgin og samfélagið sem ljóðin spretta úr hafa á þau. Loks verður hugleitt hvernig aðstæður á Íslandi og smæð Reykjavíkur hafa mótað ljóðin.