Skjalastjórn eftirlitsstofnana ríkisins

Markmið rannsóknarinnar var að gefa heildarmynd af skjalastjórn eftirlitsstofnana ríkisins og til þess var notuð megindlega aðferðarfræði með notkun spurningalista sem mælitækis. Að auki voru bornar upp fjórar rannsóknarspurningar um hvort stofnanirnar nýttu sér leiðbeiningar Þjóðskjalasafns Íslands...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Árni Jóhannsson 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14906
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að gefa heildarmynd af skjalastjórn eftirlitsstofnana ríkisins og til þess var notuð megindlega aðferðarfræði með notkun spurningalista sem mælitækis. Að auki voru bornar upp fjórar rannsóknarspurningar um hvort stofnanirnar nýttu sér leiðbeiningar Þjóðskjalasafns Íslands og uppfylltu kröfur lagaumhverfis skjalastjórnar. Einnig var spurt um skráning skjala úr fjarvinnu, hvort samfélagsmiðlar væru í notkun í upplýsingamiðlun og hvernig öryggi skjala væri háttað hjá stofnununum. Eftir að þátttakendur rannsóknarinnar höfðu svarað spurningalistanum voru gögnin keyrð út í töflum í gegnum forritið Lime Survey, sem kannanir.is sér um og niðurstöður túlkaðar út frá þeim. Niðurstöðurnar sýndu að skjalastjórn eftirlitsstofnanna var almennt góð, grundvallarstjórntæki skjalastjórnar voru í notkun hjá vel flestum stofnunum. Mikil vöntun var á að lagaákvæði væru uppfyllt en notkun leiðbeininga frá Þjóðskjalasafni Íslands voru í mikilli notkun. Flestar stofnanir voru með starfsmenn í vinnu sem skráðu skjöl í rafræna skjalastjórnarkerfi stofnana í fjarvinnu en lítið var til af verklagsreglum um slíkar skráningar. Fáar stofnanir nýttu sér samfélagsmiðla í upplýsingamiðlun og einungis lítið brot af stofnunum sem gerðu það höfðu komið sér upp verklagsreglum um samfélagsmiðla og skjalastjórn varðandi þá. Öryggi skjala var í góðum málum hjá stofnununum en örfáar stofnanir höfðu glatað skjölum eða upplýsingum í starfsemi sinni eða lent í upplýsingaleka. The main purpose of this research was giving an overall picture of records management in public surveillance authorities in Iceland. To get the overall picture, quantitative methods were used in the form of a questionnaire. As well as portraying surveillance authorities records management there were four research questions answered, which included if the surveillance authorities used instructions provided by the National Archives of Iceland and met with requirements put forth by the Icelandic legal environment. Also there were questions regarding mobile ...