Efling íslenska sveitarstjórnarstigsins: Áherslur, hugmyndir og aðgerðir

Fræðigrein Í þessari grein er fjallað um þær áherslur, hugmyndir og aðgerðir sem miðað hafa að því að efla sveitarstjórnarstigið á Íslandi, frá miðri 20. öldinni til dagsins í dag. Fjallað er um hugmyndir, greina skrif, lagasetningar, átaksverkefni um eflingu sveitarfélaga með fækkun þeirra og stækk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Grétar Þór Eyþórsson 1959-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14874
Description
Summary:Fræðigrein Í þessari grein er fjallað um þær áherslur, hugmyndir og aðgerðir sem miðað hafa að því að efla sveitarstjórnarstigið á Íslandi, frá miðri 20. öldinni til dagsins í dag. Fjallað er um hugmyndir, greina skrif, lagasetningar, átaksverkefni um eflingu sveitarfélaga með fækkun þeirra og stækkun og annað sem telja má hafa verið hluti af þeirri viðleitni að efla sveitarstjórnarstigið á Íslandi á þessu tímabili. Jafnframt er reynt að meta hvernig þróun til eflingar sveitarfélaga á Íslandi fellur að greiningarramma ítalska stjórnmálafræðingsins Bruno Dente um það hvernig ríki hafa reynt að lögmæta ríkisvaldið með því að laga það að þjóðfélagsþróuninni með endurskoðunar- og umbreytingar ferlum m.a. á neðri stjórnstigum. Upphaf hugmynda sem lotið hafa að því að efla sveitarstjórnarstigið á því tímabili sem skoðað var má rekja til greinar Jónasar Guðmundssonar sem birtist 1943 í tímaritinu Sveitarstjórnarmál. Síðan þá hafa ný Sveitarstjórn arlög verið samþykkt á Alþingi árin 1961, 1986 og 2011. Einu sinni hafa verið sett sérstök lög um sameiningu sveitarfélaga, árið 1970. Þá hefur tvívegis verið efnt til átaksverkefna með því að efna til víðtækra kosninga um sameiningu sveitarfélaga; fyrra skiptið árið 1993 og í það síðara árið 2005. Tvívegis hafa stórir málaflokkar verið fluttir úr umsjá ríkis til sveitarfélaga; grunnskólinn frá 1996 og málefni fatlaðra frá 2011. Megin niðurstaðan varðandi greiningarramma Dente um umbreytingar á sveitar tsjórnarstigi er sú að finna má aðgerðum, hugmyndum og áherslum á Íslandi víða stað í greiningarramma Dente. Sameiningar og verkefnaflutningur frá ríki til sveitarfélaga hafa þar lengst af verið meginstefið. Efling sveitarfélaga með innri breytingum er nokkuð sem fyrst og fremst hefur komið til eftir síðustu aldamót og þá einkanlega í formi lýðræðisumbóta. Lykilorð: Efling sveitarstjórnarstigsins, umbreytingar á sveitarstjórnarkerfi, sam eining sveitarfélaga, verkaskipting ríkis og sveitarfélaga, lögmæti. This article deals with mapping ideas, policy programs and policy ...