Áhrif nýrra vinnukerfa og verkferla á starfsánægju starfsmanna Straumhvarfs hf.

Ritgerðin skoðar áhrif nýrra vinnukerfa og vinnuferla á viðhorf starfsmanna fyrirtækisins Straumhvarf, betur þekkt sem Arctic Adventures. Félagið Straumhvarf er ferðaþjónustufyrirtæki sem selur og rekur ævintýraferðir. Fyrirtækið framkvæmir vinnustaðagreiningar á sex mánaða fresti til að fylgjast me...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Atli Stefán G. Yngvason 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14684
Description
Summary:Ritgerðin skoðar áhrif nýrra vinnukerfa og vinnuferla á viðhorf starfsmanna fyrirtækisins Straumhvarf, betur þekkt sem Arctic Adventures. Félagið Straumhvarf er ferðaþjónustufyrirtæki sem selur og rekur ævintýraferðir. Fyrirtækið framkvæmir vinnustaðagreiningar á sex mánaða fresti til að fylgjast með starfsánægju starfsmanna og greina möguleg vandamál í vinnuumhverfi þeirra. Út frá vinnustaðagreiningu frá ágúst 2012 var ákveðið að innleiða ný vinnukerfi og skerpa á verkferlum. Innleidd voru þrjú ný kerfi: Google Apps, TeamLab og Highrise. Verkferli í kringum sértæka sölu söludeildar og þekkingarstjórnun voru uppfærð. Áhrif á viðhorf starfsmanna vegna nýrra vinnukerfa og verkferla voru skoðuð, sem og athugað hver fræðsluþörf starfsmanna væri. Starfsánægjan minnkar milli ára, en það er ekki hægt að rekja það til nýrra vinnukerfa og verkferla. Ánægja í starfi og ánægja með nýju vinnukerfin virtist ekki tengjast. Starfsmenn á skrifstofu eru mun ánægðri með nýju vinnukerfin en þeir starfsmenn sem starfa utan skrifstofu, sem eru leiðsögumenn Straumhvarfs. Margir starfsmenn telja sig þó þurfa meiri fræðslu í nýjum vinnukerfum og þá einna helst TeamLab og Highrise-kerfunu. Bregðast þarf við með aukinni fræðslu og þá sérstaklega gagnvart leiðsögumönnum. Halda þarf nýjum kerfum við og sjá til þess að þau verði uppfærð. Áframhaldandi vinnustaðagreiningar eru líka mikilvægt tól til að meta þróun kunnáttu og viðhorf gagnvart nýjum vinnukerfum og verkferlum.