Summary: | Greint er frá heildstæðri rannsókn á upplifun og reynslu 68 fjögurra til fimm ára barna í tveimur leikskólum í Reykjavík af barnabókmenntum og afþreyingarefni fyrir börn í myndmiðlum og tölvum. Með heildstæðri rannsókn er átt við rannsóknarferli þar sem leitast er við að afla gagna um sama fyrirbærið frá ýmsum sjónarhornum. Því var rannsókninni skipt í þrjá hluta sem hver um sig endurspeglar ólík sjónarhorn. Í fyrsta hluta var þekking leikskólabarnanna á barnaefni athuguð með þátttökuathugunum. Í öðrum hluta var notkun heimila á barnaefni könnuð með spurningalista til foreldra. Í þriðja hluta voru athuguð tilvik 14 barna þegar þau beittu þekkingu sinni á barnaefni í frjálsum leik og viðbrögð jafningjahópsins við tilvísunum þeirra skoðuð. Þá voru niðurstöður greindar í fræðilegu ljósi með hliðsjón af rannsóknaraðferðum. Þær benda til að barnaefnið sem börnin ræddu og notuðu í leik feli í sér kynjaðar lýsingar á athöfnum og atgervi fólks og af því hafi börnin dregið ályktanir um ólíkt atgervi og atferli kynja. Barnaefnið reyndist uppspretta samræðu og leiks í leikskólunum en börnin báru inntakið saman við raunverulegar upplifanir. Við úrvinnsluna endursköpuðu þau fyrri þekkingu sína og drógu ályktanir sem styrktu staðalhugmyndir um kynin nema þegar tækifæri gáfust til efasemda. Fram kom að kennarararnir töldu sig stuðla að jafnrétti kynjanna með því að sýna einstaklingum, en ekki kyni þeirra, athygli og töldu kynjamun eðlislægan. Val foreldra á barnaefni á heimilum virtist að mestu ráðast af kyni barnsins. Í lok greinar eru niðurstöður reifaðar með það fyrir augum að skýra hlutverk barnaefnis í uppeldi og menntun ungra barna. This report is of a holistic study of preschool girls’ and boys’ experiences retrieved from literature and popular culture. Studies emphasising a holistic approach include practices and methods which are reflexive and process driven, producing culturally situated learning. The study was divided into three phases. First, the children’s experience of the material was observed through ...
|