Óboðinn gestur í orðræðu um börn

Greinaflokkur um kennaramenntun til heiðurs Ólafi J. Proppé sjötugum á tíu ára afmæli Netlu – Veftímarits um uppeldi og menntun Óli prik fer höndum um hljómflutningastæki heimilisins. Í sjálfsprottinni umræðu í kennslustund á Menntavísindasviði Háskóla Íslands eru tvö lykilhugtök í boði um möguleg v...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gunnlaugur Sigurðsson 1950-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14556
Description
Summary:Greinaflokkur um kennaramenntun til heiðurs Ólafi J. Proppé sjötugum á tíu ára afmæli Netlu – Veftímarits um uppeldi og menntun Óli prik fer höndum um hljómflutningastæki heimilisins. Í sjálfsprottinni umræðu í kennslustund á Menntavísindasviði Háskóla Íslands eru tvö lykilhugtök í boði um möguleg viðbrögð við þessum gjörðum hans. Annað þeirra verður tilfallandi fyrir valinu og umræðan fer fram á merkingarsviði þess en tekur óvænta stefnu vegna þriðja hugtaks sem sprettur, að því er virðist, óumhugsað upp innan þessa merkingarsviðs og reynist hafa afgerandi áhrif á framvindu umræðunnar. Í framhaldinu er sú stefna sem umræðan tók með þriðja hugtakinu skoðuð í ljósi kenninga Platons, Rousseau, Alice Miller og Peter Winch í því augnamiði að skilja ástæður þess að þetta hugtak fær svo ráðandi hlutverk í henni. Greining okkar leiðir í ljós samband hugmynda okkar og orða um börn og samband hugmynda okkar, gjörða okkar og félagslegra tengsla við börn. Hún varpar ljósi á áhrif orða okkar í lífi barna og leiðir til þeirrar lokaniðurstöðu að tilfallandi orð hafa ekki ólík áhrif í lífi barna og vængjasláttur fiðrilda á tilurð fellibyls í óreiðukenningu Edward K. Lorenz, þó með öðrum hætti sé en við sáum fyrir. ‘Ollie the stick’ handles the stereo system in his home. The event becomes the object of a self-created discussion in class at the School of Education, University of Iceland. Two key concepts are on offer as possible reactions to his gesture. One concept is arbitrarily selected and the discussion takes place within its relevant field of meaning, but takes an unexpected course due to the emergence of a third concept which almost unwittingly perturbs the field of meaning and turns out to have a far-reaching impact on the trajectory of the discussion. The trajectory of the discussion is subsequently scrutinized in terms of theories proposed by Plato, Rousseau, Alice Miller and Peter Winch, with the aim of better grasping the reasons as to why the third concept gains precedence in the discussion. Our analysis reveals ...