Minor Lycopodium Alkaloids from Icelandic Lycopodium annotinum. Isolation, structure elucidation, and acetylcholinesterase inhibitory activity

Yfirlýsing barst safninu í lok apríl 2014 undirrituð af einum leiðbeinanda en ekki höfundi. Jafnar hafa lengi verið rannsakaðir vegna lýkópódíum alkalóíða innihalds þeirra. Sumir þessara lýkópódíum alkalóíða hafa sýnt fram á mikla andkólínesterasa virkni, en ein af viðurkenndum meðferðum við Alzheim...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Díana Guðmundsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14552
Description
Summary:Yfirlýsing barst safninu í lok apríl 2014 undirrituð af einum leiðbeinanda en ekki höfundi. Jafnar hafa lengi verið rannsakaðir vegna lýkópódíum alkalóíða innihalds þeirra. Sumir þessara lýkópódíum alkalóíða hafa sýnt fram á mikla andkólínesterasa virkni, en ein af viðurkenndum meðferðum við Alzheimer sjúkdóminum eru kólínesterasa hindrar. Á Íslandi vaxa fimm tegundir jafna, þar á meðal er lyngjafni (L. annotinum), sem er einn mest rannsakaði jafninn á Íslandi. Markmið þessa verkefnis var að einangra lýkópódíum alkalóíða sem finnast í litlu magni í lyngjafna, ákvarða efnabyggingu þeirra og kanna andkólínesterasa virkni þeirra in vitro. VLC þættir sem innihalda mjög skautaða alkalóíða voru kannaðar. Einangrun var gerð með SPE og HPLC. Byggingarákvörðun var gerð með kjarnsegulgreiningu (NMR) og andkólínesterasa virknin var ákörðuð in vitro með ljósgleypnimælingum. Tveir alkalóíðar fengust nægilega hreinir og í nægilegu magni til þess að hægt væri að byggingarákvarða þá. Þetta reyndust vera lannotinidine A og C, en þeir hafa ekki fundist í íslenskum lyngjafna áður. Enn fremur fannst örlítið magn af cis-ísómer lannotinidine C í blöndu með hefðbundnum trans-ísómer af þeim alkalóíða, en cis- ísómernum hefur ekki verið lýst áður. IC50 fyrir lannotinidine A var 315 μM, en ekki var hægt að finna nákvæmt gildi fyrir lannotinidine C sem var með IC50 >500 μM, en hæsti styrkurinn sem var mældur var 500 μM. Miðað við physostigmine (IC50 0.84 μM) þá er lannotinidine A veikur asetýlkólínesterasa hindri, en miðað við þá alkalóíða sem áður hefur verið lýst úr íslenskum lyngjafna þá sýnir hann aukna virkni. Club mosses have been studied for many years for their lycopodium alkaloid contents. Some lycopodium alkaloids have shown potent acetylcholinesterase inhibition, but cholinesterase inhibitors are one of the approved treatments for Alzheimer’s disease. There are five known club moss species growing in Iceland including the interrupted club moss (L. annotinum), which is among one of the most studied in Iceland. The aim of ...