Málþroski og málörvun : því læra börnin málið að það er fyrir þeim haft

Verkefnið er lokað Þetta verkefni fjallar um alla þætti máls: málskilning, málnotkun, hljóðkerfisfræði, beygingafræði og setningafræði auk þess sem það fjallar um þróun málþroska barna og málörvun. Markmið verkefnisins var að athuga með hvaða hætti málþroski barna þróast og hvaða áhrif málörvun getu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðný Berglind Garðarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1455
Description
Summary:Verkefnið er lokað Þetta verkefni fjallar um alla þætti máls: málskilning, málnotkun, hljóðkerfisfræði, beygingafræði og setningafræði auk þess sem það fjallar um þróun málþroska barna og málörvun. Markmið verkefnisins var að athuga með hvaða hætti málþroski barna þróast og hvaða áhrif málörvun getur haft á málþroska barna auk þess að athuga með hvaða hætti er unnið að málörvun í leikskólum. Rannsóknarspurningin sem verkefnið er unnið út frá er eftirfarandi „Með hvaða hætti er unnið að málörvun á yngstu deild í nokkrum leikskólum á Akureyri?“ Í tengslum við verkefnið var framkvæmd könnun í sex leikskólum sem reknir eru af Akureyrarbæ í þeim tilgangi að athuga hvernig málörvun væri háttað á yngstu deild. Notast var við spurningalista sem samanstóð af tuttugu spurningum. Úrtak könnunarinnar var valið með einföldu slembiúrtaki og fól það í sér sex deildarstjóra yngstu deilda. Helstu niðurstöður voru að unnið er að málörvun í öllum þeim leikskólum sem þátt tóku í könnuninni. Í fimm tilvikum er lögð mjög mikil áhersla á málörvun á meðan að í einu tilviki er áherslan mikil. Í meirihluta tilvika er framkvæmt mat á árangri málörvunar, hvort sem er á formlegan eða óformlegan hátt. Málörvun fer fram í gegnum daglegt starf og í flestum tilvikum er unnið með alla þætti máls þrátt fyrir að áherslan er misjöfn varðandi hvern þátt. Þeir þættir máls sem mest áhersla er lögð á varðandi málörvun eru málskilningur og málnotkun. Mörgum aðferðum er beitt í tengslum við málörvun ásamt því að notast er við fjölbreyttan efnivið. Í því samhengi er algengast að notaðar séu bækur, söngvar og spil til málörvunar.