„Svona á að bjarga fólki“. Um séráætlanir almannavarna

Ritgerðin fjallar um viðbragðsáætlanir almannavarna. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu aðgerðastjórnenda af nýrri kynslóð séráætlana sem mælt var fyrir um í lögum um almannavarnir árið 2008. Leitað er upplýsinga um notagildi séráætlana við aðgerða- og vettvangsstjórnun. Jafnframt h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Svavar Pálsson 1974-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14513
Description
Summary:Ritgerðin fjallar um viðbragðsáætlanir almannavarna. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu aðgerðastjórnenda af nýrri kynslóð séráætlana sem mælt var fyrir um í lögum um almannavarnir árið 2008. Leitað er upplýsinga um notagildi séráætlana við aðgerða- og vettvangsstjórnun. Jafnframt hvort hægt sé að lýsa inntaki þeirrar eflingar sem talin er felast í beitingu séráætlana og hvernig sá árangur birtist. Þá er varpað ljósi á viðhorf lykilaðila til séráætlana í ljósi framtíðarþróunar stofnana og skipulags. Um er að ræða tilviksrannsókn þar sem beitt er eigindlegri rannsóknaraðferð með áherslu á Vancouver-skólann í fyrirbærafræði. Tekin voru tíu djúpviðtöl við stjórnendur lögreglu og sérfræðinga almannavarna auk þess sem fjölþætt gagnagreining fór fram ásamt vettvangsathugunum. Niðurstöður eru settar í fræðilegt samhengi áfallastjórnunar, stefnumótunar, breytingastjórnunar og þekkingarstjórnunar. Auk þess er aðferðum verkefnamats beitt, stöðumat framkvæmt og ábendingar settar fram. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að með markvissri og samræmdri gerð sértækra viðbragðsáætlana almannavarna sé stigið framfaraskref. Jafnframt er unnt að lýsa árangri af þeirri reynslu sem orðin er af smíði séráætlana, þjálfun og beitingu. Þá er sýnilegt að áframhaldandi þróun felur í sér sóknarfæri til frekari árangurs og eflingar fyrir almannavarnir og viðbragðskerfið í heild. Enn fremur er hægt að skilgreina tækifæri jafnt sem ógnir er leiða má af mögulegum breytingum í stofnanaumhverfi séráætlana, m.a. varðandi hættu á skorti á staðarþekkingu. Frekari rannsóknir og greining á viðfangsefnum almannavarna og skipulagi er og talin nauðsynleg. Iceland is widely known for its natural contrasts and weather unpredictability. Being also one of earth‘s most active sub-aerial volcanic region, makes the importance of well managed reaction plans significant in the country. A new generation of specific response plans was introduced in the civil protection act in 2008. The aim of this study is to shed light on the experience of ...