Blóðþrýstingur 9-10 ára barna á Íslandi. Algengi háþrýstings og tengsl blóðþrýstings við líkamsþyngdarstuðul og fæðingarþyngd

Tilgangur: Að kanna algengi háþrýstings og tengsl blóðþrýstings við líkamsþyngdarstuðul (LÞS) og fæðingarþyngd hjá 9-10 ára börnum á höfuðborgarsvæðinu. Efni og aðferðir: Börnum í öllum 70 grunnskólum höfuðbrgarsvæðisins var boðin þátttaka. Blóðþrýstingsmælingar fóru fram í skólunum og var hvert bar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sandra Dís Steinþórsdóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14444
Description
Summary:Tilgangur: Að kanna algengi háþrýstings og tengsl blóðþrýstings við líkamsþyngdarstuðul (LÞS) og fæðingarþyngd hjá 9-10 ára börnum á höfuðborgarsvæðinu. Efni og aðferðir: Börnum í öllum 70 grunnskólum höfuðbrgarsvæðisins var boðin þátttaka. Blóðþrýstingsmælingar fóru fram í skólunum og var hvert barn mælt fjórum sinnum, tvisvar með sjálfvirkum og tvisvar með handvirkum mæli. Þau börn sem reyndust vera með hækkaðan blóðþrýsting voru endurmæld á skólatíma. Þriðja blóðþrýstingsskimunin var svo gerð á Barnaspítala Hringsins i viðurvist foreldra ef þrýstingur reyndist vera hár í fyrri skimunum. Háþrýstingur var skilgreindur sem meðaltalsblóðþrýstingur ≥95. hundraðsröð við allar þrjár skimanirnar. Börn sem töldust vera með háþrýsting eftir þrjár skimanir gengust undir sólarhringsblóðþrýstingsmælingu. Börn með háan blóðþrýsting við sólarhringsmælingu voru greind með viðvarandi háþrýsting en þau sem höfðu eðlilega sólarhringsmælingu voru talin hafa læknastofuháþrýsting. Skólahjúkrunarfræðingar mældu hæð og þyngd og LÞS var reiknaður. Fæðingarbreytur voru fengnar úr Fæðingarskrá Íslands. Fæðingarþyngd miðað við meðgöngulengd var reiknuð samkvæmt bandarískum og sænskum stöðlum. Foreldrar svöruðu spurningalista varðandi áður greindan háþrýsting og lyfjanotkun barns. Niðurstöður: Skólastjórar 39 grunnskóla og foreldrar 1071 barns samþykktu þátttöku í rannsókninni. Fullar upplýsingar um blóðþrýsting, hæð og þyngd fengust fyrir 970 börn, þar af voru 489 stúlkur (50,4%). Meðalþrýstingur stúlkna var 111/63 mm Hg en drengja 112/64 mm Hg (p<0,01) við fyrstu skimun. Algengi hækkaðs blóðþrýstings var 13,1%, 6,1% og 3,1% eftir fyrstu, aðra og þriðju skimun. Viðvarandi háþrýstingur var greindur hjá 2,5% barnanna og 0,6% reyndust hafa læknastofuháþrýsting. Marktæk fylgni var milli blóðþrýstings og LÞS (r=0,34, p<0,001) og voru 8,6% offeitra barna með háþrýsting. LÞS skýrði 7-11% af breytileika í slagbilsþrýstingi. Upplýsingar um fæðingarþyngd fengust fyrir 857 börn, þar af voru 445 stúlkur (51,9%). Meðalfæðingarþyngd var ...