Íslenskir skólar og erlend börn! Skólaþróun í fjölmenningarlegu samfélagi
Málefni barna af erlendum uppruna á Íslandi hafa verið ofarlega á baugi undanfarin ár. Í grein þessari er fjallað um mikilvægi þess að menning skóla í heild einkennist af jafnréttishugsun og virðingu fyrir fjölbreytileikanum, til að starf með börnum af erlendum uppruna skili viðunandi árangri. Vísað...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Article in Journal/Newspaper |
Language: | Icelandic |
Published: |
2004
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/14339 |
Summary: | Málefni barna af erlendum uppruna á Íslandi hafa verið ofarlega á baugi undanfarin ár. Í grein þessari er fjallað um mikilvægi þess að menning skóla í heild einkennist af jafnréttishugsun og virðingu fyrir fjölbreytileikanum, til að starf með börnum af erlendum uppruna skili viðunandi árangri. Vísað er í dæmi og rannsóknir erlendis frá þessu til stuðnings og rætt um hvort sú stefnumörkun sem átt hefur sér stað í málefnum barna af erlendum uppruna í skólum á Íslandi hafi leitt til velgengni þeirra. Velgengni hér á bæði við góðan árangur og framfarir í námi og sterka félagslega stöðu. Spurt er hvort þörf sé fyrir nýja grundvallarhugsun í skólastarfi á Íslandi, í samfélagi þar sem einstaklingum af ólíkum menningar- og trúarlegum uppruna fer fjölgandi. Í greininni eru einnig nefnd dæmi úr yfirstandandi eigindlegri rannsókn höfundar (2002 – 2005) á stöðu og framförum nítján barna af erlendum uppruna sem hófu skólagöngu í fjórum leikskólum og tveim grunnskólum í Reykjavík árið 2002. Börnin eiga báða foreldra erlenda. |
---|