Summary: | Afbrotamenn sem glíma við einhvers konar geðraskanir eru ört stækkandi hópur innan réttarkerfisins. Þeir eru ýmist dæmdir sakhæfir eða ósakhæfir og eru þá annaðhvort vistaðir á réttargeðdeild eða í fangelsi. Almenn hegningarlög segja til um hvernig skuli dæma sakhæfi manna og þar skiptir geðrænt ástand á verknaðarstundu höfuðmáli. Sá brotlegi getur ekki verið dæmdur ósakhæfur ef að hann var undir áhrifum áfengis- eða vímuefna. Markmið þessarar ritgerðar er að skoða hvernig geðheilbrigðisþjónustu við geðsjúka afbrotamenn hefur verið háttað á Íslandi og hvað þarf að gera til þess að mæta þjónustuþörf þeirra. Niðurstaðan leiddi í ljós að aðstaða, meðferð og þjónusta á réttargeðdeild er góð og þar er vel komið til móts við ósakhæfa einstaklinga. Mikil þörf er þó á úrræðum fyrir sakhæfa geðsjúka fanga sem afplána dóm í fangelsi. Þeir virðast ekki eiga heima á almennum geðdeildum eða á réttargeðdeild og margir hverjir þurfa meiri og sérhæfðari þjónustu en boðið er upp á í fangelsum. Til að mæta þjónustuþörf þessara einstaklinga þyrfti meðal annars að fjölga stöðugildum geðlækna og annarra sérfræðinga, eins og félagsráðgjafa, í fangelsum og bjóða upp á sérstakt úrræði fyrir geðsjúka fanga sem þurfa á viðameiri geðheilbrigðisþjónustu að halda. Abstract There has been a steady increase in mentally ill criminals in the criminal justice system. In Iceland, these individuals are either considered fit or unfit to stand trial and are either sentenced to prison or admitted to a correctional psychiatric facility. The general criminal law determines whether people are fit to stand trial and where people serve their sentences. Judgements are based on the subject’s mental health status at the time the crime was committed and whether the criminal was under the influence of alcohol or other substances. The purpose of this essay is to examine how mental health care has been practiced in the criminal justice system in Iceland and what has to be done to fulfill the mental health needs of criminals. The conclusion indicates that ...
|