Áhrif þess að verða ellilífeyrisþegi : þær breytingar sem varða á höfum einstaklinga við þau tímamót og þjónusta sem í boði er

Í ritgerð þessari verður farið yfir þau réttindi sem fólk á rétt á þegar það nær því að verða 67. ára og þá þjónustu sem í boði er frá ríki og sveitafélagi. Farið verður yfir sögu þjónustu við aldraða á Íslandi og núverandi stöðu þjónustunnar. Þegar farið er yfir þau réttindi og þá þjónustu fyrir el...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ólöf Dóra Hermannsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1427
Description
Summary:Í ritgerð þessari verður farið yfir þau réttindi sem fólk á rétt á þegar það nær því að verða 67. ára og þá þjónustu sem í boði er frá ríki og sveitafélagi. Farið verður yfir sögu þjónustu við aldraða á Íslandi og núverandi stöðu þjónustunnar. Þegar farið er yfir þau réttindi og þá þjónustu fyrir eldri borgara sem í boði eru í dag er af mörgu að taka. Ríkið býður fólki upp á ellilífeyrir en hann er háður skilyrðum sem vert eru að kynna sér til hlítar. Sveitafélöginn bjóða upp á marg þætta þjónustu og ættu flestir að geta fundið þar eitthvað við sitt hæfi. Í ritgerðinni verður farið yfir réttindi og skyldur í sambandi við ellilífeyrinn og kynnt sú þjónusta sem í boði er af sveitafélögunum og gildir þá engu hvar búið er, skilda sveitafélanna er sú sama um allt land. Einig verður fjallað um kenningar um öldrun sem hafa verið alráðandi til þessa en eru á undanhaldi eins og hlédrægnikenninguna sem gengur út frá því að forræðishyggjan sé alráðandi og að aldraðir hafi allir sömu þarfir. Gripið verður handahófslega niður á hinar ýmsu hugleiðingar hvað varðar öldrun sem þóttu áhugaverðar og verðar þess að kynna. Og að lokum verður kynntur spurningalisti sem lagður var fyrir handahófs úrtak eldri borgara á nokkrum mismunandi stöðum í Reykjavík um áhrif starfsloka á heilsu og lífsgæði. Hvað varðar þetta litla úrtak er áberandi hvað það er mikill munur á konum og körlum hvað varðar mat á lífsgæðum og heilsufari.