Afbrot unglinga : orsakir, úrræði og meðferð mála

Það er mál manna í þjóðfélaginu að neysla fíkniefna meðal ungmenna hafi aukist. Einnig hefur sá orðrómur verið á kreiki að á Akureyri hafi neysla fíkniefna meðal unglinga aukist til muna og að afbrot því tengdu hafi fylgt í kjölfarið. Forvitnilegt er að vita hverjir það eru sem leiðast út í afbrot o...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þorgerður Hafdís Þorgilsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1423
Description
Summary:Það er mál manna í þjóðfélaginu að neysla fíkniefna meðal ungmenna hafi aukist. Einnig hefur sá orðrómur verið á kreiki að á Akureyri hafi neysla fíkniefna meðal unglinga aukist til muna og að afbrot því tengdu hafi fylgt í kjölfarið. Forvitnilegt er að vita hverjir það eru sem leiðast út í afbrot og af hverju. Hvort þetta fólk á eitthvað sameiginlegt, og hvað hefur áhrif á það að í upphafi leiðist fólk út á þessa braut í lífinu. Verkefni þetta fjallar um afbrot ósjálfráða unglinga og það hvernig tekið er á slíkum málum. Skoðað er hvernig lögin eru varðandi meðferð slíkra mála, hvaða meðferðarúrræði eru í boði fyrir þessa einstaklinga og lítillega fjallað um meðferðarheimili fyrir ungmenni sem staðsett eru víða um land. Skoðaðar eru kenningar innan afbrotafræðinnar svo og rannsóknir sem gerðar hafa verið varðandi þennan málflokk. Í verkefninu er kafli sem fjallar um fíkniefnaneyslu og afbrot unglinga á Akureyri. Þar er skoðað hvernig tekið er á þeirra málum, hvort það samræmist þeim lögum og reglum sem settar hafa verið um þessi mál og meðferð mála rakin. Tekið er viðtal við félagsráðgjafa hjá Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar í þeim tilgangi að varpa ljósi á stöðu mála í bænum varðandi fíkniefnineyslu og afbrot unglinga. Skoðað er hvaða hlutverk starfsmenn barnaverndarnefndar þar í bæ hafa þegar slík mál koma upp og hvernig meðferð slíkra mála er. Tekin eru viðtöl við unglingsstúlkur sem dveljast að meðferðarheimilinu Laugalandi í Eyjafjarðarsveit og fanga í fangelsinu á Akureyri með langan og mikinn afbrotaferil að baki. Tilgangurinn með viðtölunum var m.a. að skoða hvort ástæður þess að þessir einstaklingar leiddust út í fíkniefni og afbrot megi á einhvern hátt tengja við þær kenningar og rannsóknir sem fjallað er um. Heimilda var aflað með hefðbundnum hætti, með því að glugga í bækur, skýrslur, tímarit og vefsíður til að fá sem besta mynd af því hvernig staðið er að málum afbrotaunglinga á Íslandi og kynnast þeim kenningum sem settar hafa verið fram um afbrotahegðun.