Samþjöppun á bankamarkaði í ljósi breyttra starfshátta

Ritgerðin er lokuð Ritgerðin fjallar um samþjöppun á bankamarkaði í ljósi breyttra starfshátta og nýrrar tækni. Leitast ég við að svara spurningunni hverjar eru helstu ástæður samþjöppunar á bankamarkaði. Fer ég yfir þróunarferli bankakerfisins og rek stuttlega sögu þeirra bankastofnana sem eru star...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurbjörg Ósk Stefánsdóttir 1967-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14186
Description
Summary:Ritgerðin er lokuð Ritgerðin fjallar um samþjöppun á bankamarkaði í ljósi breyttra starfshátta og nýrrar tækni. Leitast ég við að svara spurningunni hverjar eru helstu ástæður samþjöppunar á bankamarkaði. Fer ég yfir þróunarferli bankakerfisins og rek stuttlega sögu þeirra bankastofnana sem eru starfandi í dag. Stærð bankakerfisins á Íslandi er borin saman við stærð bankakerfisins á Norðurlöndunum. Til að nálgast spurninguna sem ég lagði upp með voru gögn og skýrslur tengdar málefninu skoðaðar og metnar, útskýrt hvernig samþjöppun er mæld á mælikvarða Herfindahl-Hirschman Index (HHI), og tölfræðilegar upplýsingar um notkun einkabanka og útgjaldadreifingu greindar. Spurningar voru lagðar fyrir Finn Sveinsson sem sér um samfélagslega ábyrgð hjá Landsbanka Íslands og tekið var viðtal við Einar Hannesson útibústjóra Landsbankans í Keflavík. Niðurstaðan er sú að efnahagshrunið er klárlega ein stærsta ástæða samþjöppunar á bankamarkaði frá árinu 2008. Samrunar viðskiptabanka og sparisjóða sem urðu í kjölfar efnahagshrunsins juku samþjöppun á bankamarkaði gífurlega. Einnig kalla hraðar breytingar í nýrri tækni og notkun netbanka á breytta viðskiptahætti. Með rannsóknarvinnu þessari kom skýrt fram að með nýrri kynslóð koma nýjar áherslur og aðrir starfshættir. Að lokum er hluti af samþjöppun á bankamarkaði afleiðing lokunar og fækkunar á útibúum viðskiptabanka og sparisjóða sem hafði átt sér stað frá því nokkuð fyrir efnahagshrun og kom í ljós að það er skýr vilji bankastofnana að fækka útibúum og hagræða í íslenska bankakerfinu þar sem það þykir allt of stórt og dýrt.