„Það þarf að læra íslensku til að geta klárað námið“ : sýn innflytjenda frá Asíu og Afríku sem hafa lokið framhaldsskóla á Íslandi á skólagöngu sínu

Í ritgerðinni er fjallað um innflytjendur frá Asíu og Afríku sem hafa lokið framhaldsskólagöngu á Íslandi. Byggt er á niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar sem unnin var árið 2012. Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í reynslu innflytjenda frá fjarlægum heimsálfum, sem hafa útskrifast úr framhald...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hafdís Garðarsdóttir 1970-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14125
Description
Summary:Í ritgerðinni er fjallað um innflytjendur frá Asíu og Afríku sem hafa lokið framhaldsskólagöngu á Íslandi. Byggt er á niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar sem unnin var árið 2012. Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í reynslu innflytjenda frá fjarlægum heimsálfum, sem hafa útskrifast úr framhaldsskóla á Íslandi, af skólagöngu sinni. Skoðað var hvaða sýn viðmælendurnir hafa annars vegar á það hvað stuðli að velgengni nemenda í framhaldsskólanámi, sem koma frá menningarsvæðum sem eru mjög frábrugðin Íslandi, og hins vegar hvað hindri velgengi. Þátttakendur í rannsókninni voru fjórar ungar konur og fjórir ungir karlar sem fluttust til Íslands á aldrinum 10 til 17 ára frá nokkrum ólíkum löndum í Asíu og Afríku. Þegar viðtölin fóru fram var fólkið á aldrinum 20-28 ára og voru flestir í háskólanámi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þrátt fyrir mismunandi fjölskylduaðstæður fengu allir þátttakendur mikla hvatningu og stuðning til náms frá fjölskyldum sínum. Þetta eru allt einstaklingar sem gekk vel í skóla í heimalöndum sínum. Það nægði þó ekki að eiga auðvelt með nám. Til að ná árangri þurfti unga fólkið að ná góðum tökum á íslensku og eyða miklum tíma í námið. Þau sem gengu í grunnskóla á Íslandi töldu þá ekki undirbúa innflytjendur nægilega vel undir framhaldsskólanám því þar séu engin lágmarksviðmið sem þurfi að ná til að mega flytjast á milli ára. Í framhaldsskólunum séu gerðar sambærilegar kröfur til innflytjenda og annarra nemenda til að ljúka áföngum. Því gefist margir upp þegar í framhaldsskólana er komið. Auk þess fái margir frekar hvatningu frá fjölskyldum sínum til þess að fara að vinna og afla launa en að fara í skóla. This thesis discusses immigrants from Asia and Africa who finished their secondary school education in Iceland. The thesis is based on the results of a qualitative research which was carried out in 2012. The aim of the study was to gain some insight into Asian and African immigrants‘ experiences of the Icelandic secondary school system. The study examined what factors the ...